Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Blaðsíða 132
130
Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009
að sjá um líkamlega umönnun barnanna
(Jóhanna Thorsteinsson, 1999a, 1999b). Aðrir
hafa bent á að starfið í leikskólanum byggist
jöfnum höndum á umönnun einstaklinganna
og umhyggju fyrir þeim (Elva Önundardóttir,
Gunnur Árnadóttir og Sigríður Sturludóttir,
2006; Jóhanna Einarsdóttir, 2003). Þar sem
sýnt hefur verið fram á að gæði umhyggju geta
tengst greind barna (Shore, 1997) og að við leik
og umhyggjusöm samskipti við fullorðna og
jafnaldra þroskast barnið og lærir (Broström,
2003; Karlsson-Lohmander og Pramling-
Samuelsson, 2003) má ætla að hlýja, öryggi,
traust og umhyggja fyrir einstaklingnum skipti
miklu máli fyrir þroska barnsins.
Uppeldisfræðingurinn og heimspekingurinn
Nel Noddings hefur verið ötull talsmaður
þess að umhyggja sé höfð að leiðarljósi í
skólastarfi. Hún telur m.a. að umhyggjusamur
kennari kenni það sem barnið vill læra og
gangi ekki lengra en barnið þolir en sé tilbúinn
þegar barnið er tilbúið til þess að ögra því
og ýta áfram í þroska og færni (Noddings,
2002). Í bók sinni On Caring bendir Milton
Mayeroff (1971) m.a. á að þegar einstaklingur
ber umhyggju fyrir öðrum stuðlar hann að því
að viðkomandi vaxi og dafni.
Hér á eftir er gerð grein fyrir niðurstöðum
rannsóknar á því hvaða skilning leikskóla-
kennarar leggja í hugtakið umhyggja í starfi
með leikskólabörnum og niðurstöðurnar m.a.
bornar saman við skilgreiningar Noddings og
annarra fræðimanna á hugtakinu.
Skilgreiningar á umhyggju
Samkvæmt íslenskri orðabók merkir það að
bera umhyggju fyrir einhverjum að láta sér annt
um velferð hans. Umönnun merkir samkvæmt
sömu orðabók að annast um, umhirða (Íslensk
orðabók, 2002). Má því segja að umönnun
sé tæknilegra hugtak en umhyggja, annað
(umönnun) snúist um framkvæmd en hitt
(umhyggja) frekar um viðhorf og tilfinningar.
Noddings (2003) skilgreinir hugtakið „care“
(umhyggja) sem það að láta sig einhvern eða
eitthvað varða, ýmist af skyldurækni eða af
því að maður af einlægum áhuga ber velferð
einhvers fyrir brjósti. Má því segja að hugtakið
„care“ nái bæði yfir umönnun og umhyggju
eins og þau eru skilgreind í Íslenskri orðabók.
Umhyggja fyrir einstaklingi byggist að mati
Noddings á nánum samskiptum tveggja og
þar koma alltaf við sögu bæði veitandi og
þiggjandi. Leikskólakennarinn er yfirleitt sá
sem veitir og börnin þau sem þiggja. Sá sem
veitir umhyggju skilur þann sem þiggur og
áttar sig á líðan hans, hefur skilning á þörfum
hans. Sá sem þiggur þarf að skilja, átta sig á
að eitthvað er gert eða sagt af umhyggju fyrir
honum, en það er ekki endilega alltaf svo
ljóst í samskiptum barna og leikskólakennara.
Noddings (2003, 2005) telur að árekstrar eða
flækjur geti skapast milli veitanda og þiggjanda
ef ekki er hlustað eða reynt að setja sig í spor
þess sem á að þiggja. Að sama skapi geti
umhyggja snúist upp í andhverfu sína ef ekki
er hlustað eftir vilja, löngun eða væntingum
þess sem þiggur. Sá sem umhyggjan beinist að
þarf að meðtaka hana, hann þarf að skynja og
upplifa að umhyggjunni sé beint til hans. Það
er hvatinn eða hugarfarið, sem liggur að baki
umhyggjunni, sem er útgangspunkturinn og
ræður eðli umhyggjunnar. Leikskólakennarinn
þarf því að sjá og heyra hvert einstakt barn svo
að öll fái þá umhyggju sem þau þarfnast. Ef allt
er eins og best verður á kosið má ætla að börnin
beri mikla umhyggju fyrir leikskólakenn-
urunum sínum; því geta leikskólakennararnir
líka verið þiggjendur og umhyggjan gagn-
kvæm.
Noddings (2003) telur að takmark mennt-
unar ætti að vera að einstaklingurinn öðlist
trú á sjálfan sig og eigin getu og verði
hamingjusamur, en til að svo megi vera verði
hann að fá grunnþörfum sínum fullnægt.
Maslow (1987) setti fram kenningu, í formi
píramída, um grunnþarfir mannsins. Neðst
í píramídanum eru þarfirnar fyrir næringu,
öryggi og traust. Þörfin fyrir að tilheyra og vera
elskaður er einnig neðarlega í píramídanum
og því framarlega í forgangsröðinni. Efst á
píramídanum trónir þörfin fyrir sjálfsbirtingu
(self-actualization need), þörfin fyrir að verða
heilsteyptur og þroskaður einstaklingur.
Maslow hélt því fram að þó að öllum
grunnþörfum væri fullnægt yrði maðurinn ekki
Sigríður Síta Pétursdóttir