Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Side 61

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Side 61
59 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 Gróska og stöðnun í stærðfræðimenntun 1880–1970 stærðfræðikennslu og þar var vitnað í fundinn í Royaumont 1959. Nýja stærðfræðin í barnafræðslunni Þegar fram liðu stundir urðu til kynslóðir kennara og foreldra sem aldrei höfðu séð stærðfræði setta fram á annan hátt en þeir Ólaf- ur Daníelsson og Elías Bjarnason gerðu og margir gátu líklega ekki gert sér í hugarlund aðrar aðferðir eða aðra nálgun. Um miðjan sjöunda áratuginn hófust á því róttækar breytingar. Þá voru liðnir tveir áratugir frá því að inntökupróf í menntaskólana voru felld niður og bein áhrif menntaskólanna á námsefni barnafræðslunnar höfðu löngu dvínað en Ríkisútgáfa námsbóka hafði haldið námsefni barnaskólanna í sessi og ekki haft frumkvæði að breytingum. Hinar alþjóðlegu hugmyndir um breyt- ingar á stærðfræðikennslu þróuðust frá því að vera einskorðaðar við undirbúning undir háskólanám til þess að laga þær að unglinga- og barnafræðslu. Nýja stærðfræðin kom inn í barnafræðsluna á Íslandi árið 1966, samhliða tilraunum til breytinga á landsprófsundirbúningnum. Endurnýjun nám- sefnisins var upphaflega að frumkvæði fræðslu- stjórans í Reykjavík en Guðmundur Arnlaugs- son menntaskólakennari benti á kennslubækur eftir danska höfundinn Agnete Bundgaard til þýðingar (Kristinn Gíslason, 1978). Bækurnar voru samdar á vegum norrænnar nefndar, NKMM, Nordiska kommittén for modernisering af matematikundervisningen, sem skipuð var í framhaldi af fundinum í Royaumont. Skólarannsóknadeild Mennta- málaráðuneytisins var síðar falin umsjón með þróun námsefnis í öllum námsgreinum, þar á meðal stærðfræði. Hlutverk Ríkisútgáfunnar varð þá aðeins að sjá um útgáfuna en frumkvæðið var úr hennar höndum. Nýja stærðfræðin var í fyrstu vel þegin nýjung en þegar átti að kenna tíu ára börnum um mengjaaðgerðir, frumtölur, umraðanir, reikninga í sætiskerfum með öðrum grunntölum en 10 og hlutföll sem línuleg föll og rúmfræði í mengjafræðilegu umhverfi varð mörgum um og ó. (Sjá t.d. Magnús Sveinsson, 1972). Upp reis mikil umræða og margir kvörtuðu, en þeir barnakennarar voru til, og þá sérstaklega þeir sem höfðu stúdentspróf úr stærðfræðideild, sem varð þessi stærðfræði fyrir börn nokkur opinberun. Þeir tóku að semja nýtt námsefni sem varð eins konar samruni hins gamla og hins nýja og það entist fram yfir aldamót. Jarðvegurinn var Skólarannsóknadeildin sem varð brátt umsvifamikil og fékk mikið fjármagn til að endurskoða og semja nýtt námsefni (Kristín Bjarnadóttir, 2006). Var að því leyti ólíkt komið með henni og Ríkisútgáfu námsbóka á eftirstríðsárunum, en miklu munaði einnig um hina faglegu forystu sem Skólarannsóknadeild veitti en hafði lítil verið hjá Ríkisútgáfunni. Umræða Kennslubækur þeirra Ólafs Daníelssonar og Elíasar Bjarnasonar voru kenndar áratugum saman en báðar komu þær fyrst fram á þriðja áratug tuttugustu aldar. Færa má rök fyrir því að óheppilegt hafi verið að kenna þær svo lengi. Dæmi dr. Ólafs voru t.d. snjöll mörg hver en þau voru barn síns tíma. Telja má bækur Jóns Á. Gissurarsonar o.fl. af sama toga en dæmin eru síður eftirminnileg og útskýringar veigalitlar. Reikningsbækur Kristins og Gunngeirs komu ekki út fyrr en 1962 og 1963. Megingallinn við að taka upp bók Elíasar Bjarnasonar var að ein bók skapar engar umræður. Vel er hægt að kenna börnum hefðbundinn reikning þar sem þau hafa meiri svigrúm til eigin nálgunar, hugkvæmni og frumkvæðis en gert er í Reikningsbók Elíasar. Megináherslan var á öryggi og nákvæmni en skilningur var aukaatriði, ef til vill talinn sjálfsögð hliðarafurð, komin undir kennara. Nefna má til dæmis að þeir dr. Ólafur og Elías kenndu báðir sömu aðferðina við að finna minnsta samnefnara brota. Aðferðin er óskýrð og kemur að engu gagni þegar almennar reglur um minnsta samnefnara algebrubrota eru settar fram. Dr. Ólafur virðist ekki hafa viljað kynna frumtölur til sögunnar fyrr en hann hafði sannað að fjöldi frumþátta í tölu gæti ekki
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.