Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 91

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 91
89 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 2005 með stuðningi Markáætlunar um upplýsingatækni og umhverfismál. Þar var skoðuð notkun upplýsingatækni á öllum skólastigum. Markmið rannsóknarinnar var að komast að því hvað notkun upplýsinga- og samskiptatækni hefði í för með sér fyrir nemendur og nám, fyrir kennara og kennslu og fyrir skólann sem stofnun. Niðurstöður leiddu í ljós að notkun UST í kennslustundum var almennt skammt á veg komin, möguleikar voru oft vannýttir og notkun einhæf. Einstakir kennarar notuðu UST að eigin frumkvæði í þágu kennslu og náms fremur en að markvissri stefnu væri framfylgt í skólum (NámUST, 2005) og að mati þátttakenda nýttist UST vel í kennslu sem byggðist á verkefnavinnu og skapandi starfi þar sem hefðbundin stundaskrá var brotin upp og kennarar störfuðu saman. En ljóst var að ekki hefði tekist að tvinna saman notkun UST og faggreinakennslu. Svipað kom fram í rannsókn frá 2005 (Allyson Macdonald, Þorsteinn Hjartarson og Þuríður Jóhannsdóttir, 2005), þar sem höfundar komust að þeirri meginniðurstöðu að höfundar námskráa 1999 hefðu líklega ofmetið forsendur skólanna til að takast á hendur þær breytingar sem notkun UST krafðist. Fáar rannsóknir hérlendis hafa beinst að notkun UST í kennslugreinum og færni kennara. Manfred Lemke (2005) gerði könnun sem byggðist á svörum frá 1088 kennurum um eigin færni í tölvunotkun. Við nánari skoðun á færni í mismunandi kennslugreinum kom fram að í þremur kennslugreinum var staðan best: Raungreinum, samfélagsgreinum og stærðfræði. Raungreinakennarar töldu sig hafa mesta færni allra hópa og vel fyrir ofan meðaltal. List- og verkgreinakennarar voru meðal þeirra sem töldu sig hafa minnsta færni. Munurinn milli hópanna fólst aðallega í notkun töflureiknis. Athyglisvert er að Manfred var á þeirri skoðun að færni kennara væri sterkari í greinum „þar sem tölvunotkun á sér lengri hefð“. (Manfred Lemke, 2005, bls. 58). Aðalbjörg María Ólafsdóttir (2009) rann- sakaði aðstæður sex myndlistarkennara og komst að því að þótt kennararnir teldu sig nota UST í kennslu sinni reyndist notkun lítil og þá að stórum hluta við undirbúning kennslu og svonefndar innlagnir en í minna mæli sem stuðningur við sjálft námið. Nemendur fengu örsjaldan verkefni sem tengdust möguleikum upplýsingatækni á að breyta eða styðja við námið. Myndlistarkennararnir í rannsókninni virtust ekki telja sig þurfa að taka ábyrgð á því að fylgja aðalnámskrá í upplýsinga- og tæknimennt sem er vert athygli í ljósi þeirra ákvæða sem vitnað var til hér að framan úr aðalnámskrá. Svava Pétursdóttir stundar nú doktorsnám við Háskólann í Leeds. Þar rannsakar hún þátt UST í kennslu náttúruvísindakennara í 7.–10. bekkjum hér á landi. Rannsóknin saman- stendur af spurningakönnunum og viðtölum. Í samtali við Svövu kom fram að samkvæmt gögnum hennar reyndist algengasta formið á notkun UST í náttúrufræðikennslu vera öflun upplýsinga af Netinu um valin viðfangsefni og kynning á þeim með glæruforriti (Power- Point) eða í ritvinnslu í ritgerðum. Notkun kennara á PowerPoint-forritinu virtist sam- kvæmt þessu orðin töluvert mikil í almennri kennslu þegar gagnasöfnun hennar fór fram. Rannsókn á stefnumörkun og þróun í upplýsingatækni og stafrænu námsefni á Íslandi, hluti af stærra rannsóknarverkefni sem unnið var af OECD á árunum 2007–2009 (OECD/CERI, 2008, 2009), leiddi í ljós að á Íslandi virtist vera hægt að kenna allar greinar, nema upplýsingatæknina sjálfa, án þess að nota tölvur. Stefnan reyndist vera mörkuð af hálfu yfirvalda en treyst var á frumkvæði fólks á skólavettvangi til að framkvæma hana með gerð námsefnis og gagna og umsóknum um styrki til þess. Líkt og hjá Bennett (2003) kom þarna fram að kennarar þyrftu meiri stuðning og skapa þyrfti vettvang, t.d. á Netinu, fyrir kennara til að mynda samfélag um vinnubrögð og kennsluhætti. Þetta virðist vera réttmæt niðurstaða, því að kennsluráðgjöf á sviði upplýsingatækni er veikburða hér á landi og faggreinafélög á sviðinu virðast ekki hafa lagt á þetta áherslu. Opinbert fé sem fer í gerð stafræns námsefnis er veitt í gegnum Náttúrufræðinám með stuðningi upplýsinga- og samskiptatækni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.