Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 139

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 139
Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 að þá mynda þau ekki þessa sjálfstjórn og sjálfræði.“ Þátttakendur töldu að börn þyrftu að læra að lúta reglum til að öðlast innri aga – til þess að geta farið eftir reglum og síðan bjargað sér sjálf síðar meir. Þær töluðu einnig um að börnin þyrftu að standa við þær ákvarðanir sem þau tækju og áttu þá m.a. við að börnin héldu sig við það sem þau hefðu valið sér að gera. „Það eru reglur úti um allt og maður getur ekki leyft sér að vera bara stjórnlaus og vaða bara uppi,“ sagði Telma. Í rýnihópi Fjalls sögðu þátttakendur þetta: „Starfið snýst um það að við berum þessa umhyggju fyrir barninu. Það er stór þáttur í því að kenna og leggja inn hjá þeim – í öllu sem við erum að gera.“ Gildi umhyggju fyrir starfið í leikskólanum Bæði í viðtölunum og umræðunum í rýnihópum kom fram að umhyggjuhugtakið hefði fengið frekar neikvæða umfjöllun þar sem það væri oftast tengt umönnun aldraðra sem væri svo aftur tengd manneklu og lágum launum. Líklegast væri það ástæða þess að umönnun og umhyggju væri ekki gert jafnhátt undir höfði nú og áður fyrr. Þetta viðhorf kom skýrt fram hjá Maríu: „Við vorum að ræða þetta um daginn ... þetta er farið að fá þannig séð einhvern neikvæðan stimpil þó að þetta sé ekkert ljótt orð – neikvæðari mynd heldur en var, finnst mér.“ Í rýnihópi Fjalls kom hins vegar fram að þeim fyndist eins og umræðan væri farin að snúast í þá átt að það að vera fær um að sýna umhyggju og þekkja tilfinningar sínar og þora að sýna þær væri eitthvað sem væri eftirsóknarvert. Þetta töldu þær að hefði breyst í áranna rás. Þátttakendum fannst líklegt að hluta skýringarinnar mætti rekja til þess að Íslendingar hefðu yfirleitt verið taldir heftir og ekki gjarnir á að sýna eða tala um tilfinningar sínar. Í uppeldinu hefði þetta birst þannig að það mátti ekki gráta, það átti að harka af sér og vera duglegur; það var talið veikleikamerki ef sást að eitthvað var að. En eins og kom fram í rýnihóp Fjalls: „En ég held við séum að læra, bara þessa umhyggjusemi, hún er miklu meiri [í dag] og hún er ekkert plat, skilurðu. Hún er virkilega það sem fólk vill sýna í dag.“ Að mati þátttakenda í rannsókninni er umhyggja innbyggð í allt starf leikskólans og felst í því að mæta hverju barni þar sem það er statt, jafnt líkamlega sem andlega. Umhyggja felst í samskiptum og tengslum sem lýsa sér í því að hlusta á þarfir, væntingar og langanir allra barnanna. Umhyggja birtist í því að skapa traust og öryggi með því að setja mörk og sýna hlýju og gefa barninu með því tækifæri til að þroskast og dafna á eigin forsendum og nýta möguleika sína á sem bestan hátt. Umhyggja er fólgin í skipulagi og reglum sem skapa öryggi. Umhyggja kemur fram í því að láta sig varða þroska hvers einasta barns. Í flestum viðtölunum kom fram það viðhorf að umhyggja fyrir grunnþörfum einstaklingsins væri forsenda þess að hann næði að þroskast og læra. Eins og Saga orðaði það: Þau þurfa að nærast, þau þurfa að hvílast, þeim þarf að líða vel, vera þurr. Sem sagt, já, í þurrum fötum, ekki kalt og ekki of heitt. Þetta þarf allt að koma í rauninni áður ... svo getur maður farið að læra, og læra með ánægju. Hafa gaman af að leika sér eða, já, að vera til almennt. Saga bar þetta saman við þarfapíramída Maslows, hún taldi undirstöðurnar þurfa að vera sterkar svo að yfirbyggingin héldi. Unnur taldi að áhrifa umhyggjunnar gætti til lengri tíma; þannig gæti t.d. skortur á umhyggju á fyrstu árum barns haft áhrif á tilfinninga- og félagsþroska þess síðar á ævinni. „Ég held að hún [umhyggjan] skipti alveg rosalega miklu máli,“ sagði Unnur. Þegar ég bað hana að nefna mér dæmi svaraði hún: Já, við gætum kannski bent á svona vanrækta einstaklinga, þeir eru til sem eru alveg sýnilega vanræktir og það kemur mjög fljótt fram. Ég held að þessir einstaklingar geti minna gefið af sér og verði svona einhvern veginn kaldari og svona, já, passívari og þeir eiga erfitt með að mynda tengsl. Sama sjónarmið kom fram hjá Tönju sem sagði: „Umhyggja á fyrstu árunum er forsenda 137 „Blítt bros og hlýtt faðmlag“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.