Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Page 39
hvort annað. Taoisminn bjargi Tarkovsky frá staðlaðri Maríuhelgisögn
kristninnar og Jesús bjargar honum úr óhlutstæðni (abstraktion) taoismans.
Tao er kortið en Jesús vegurinn. Hann færði fórnina sem braut lögmál dauð-
ans. Þær Larsson og Hammar túlka myndina reyndar út frá fleiri sjónar-
homum, m.a. út frá málverki Leonardos da Vinci af vitringunum hylla Jes-
úbamið og út frá skáldsögu Dostojevskys, Fávitanum, og leikriti Shakesp-
eares, Ríkharði III, en Alexander, aðalpersóna myndarinnar, lék bæði
Myshkin fursta og Ríkharð III á leikferli sínum.8
Margræðni Fórnarinnar birtist meðal annars í því að skilin milli draums
og veruleika eru oft óljós og ekki alltaf auðvelt að gera sér grein fyrir hvað
gerist í raunvemleikanum og hvað handan hans eða jafnvel í hugskoti aðal-
persóna myndarinnar. Ljóst er að einn eða fleiri draumar blandast töluvert
inn í myndina en þeir sem um þá hafa fjallað em ekki á einu máli um
hvenær þeir hefjast né hvenær þeim lýkur. Jafnvel er talað um draum í
draumi.9 Sjálfur sagði Tarkovsky um Fórnina:
Sérhver þáttur hennar felur ekki aðeins í sér ígildi raunveruleikans heldur
jafnframt mörg lög merkingar. Anstætt fyrri myndum mínum hefur hún að
geyma ákveðinn ljóðrænan stfl, en í henni er hver þáttur útfærður á „dramat-
ískari" hátt. [...] ...þótt atriðin séu kvikmynduð eins og þau væru raunveruleg
eru þau hugsuð sem líkingar.10
Tarkovsky leggur þannig áherslu á líkingarnar og hið ljóðræna. Mar-
græðnin í túlkun Fórnarinnar þarf því ekki að koma á óvart. Auk þess hefur
verið bent á að Alexander, með áhuga sínum á austrænni tónlist, heimspeki
og trú, bæði á Guð og alls kyns mýstísk fyrirbæri, endurspegli á vissan hátt
Tarkovsky sjálfan á þeim tíma sem myndin var tekin. Á síðustu árum ævi
sinnar byrjaði hann að sækja kirkju og lesa Biblíuna af meiri alvöru en áður.
En hann var einnig heillaður af stjörnuspeki, dulskynjun og ýmsum yfirnátt-
úrlegum fyrirbærum ásamt austrænum trúarbrögðum á borð við búddadóm
og taoisma.* 11
í þessari grein er ætlunin að skoða myndina fyrst og fremst út frá krist-
inni guðfræði. Það hefur vissulega verið gert áður enda margt í myndinni
sem mælir með þeirri túlkun. Sjónarhom mitt mun mótast af fjórum megin-
þáttum eða þráðum í myndinni. í fyrsta lagi hvemig Tarkovsky notar fyrr-
nefnt málverk Leonardos da Vinci af vitringunum. I öðru lagi hvemig hann
fléttar það við aríu úr Matteusarpassíu Bachs, Erbarme Dich, Gott (Mis-
8 Larsson og Hammar, 1992.
9 Pavelin.
10 Epelboin, 1986.
11 Johnson & Petrie, 1994, s. 182.
37