Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Blaðsíða 44
Spennan og hringiðan í málverkinu á sér hliðstæðu í þeirri spennu og
óreiðu sem ríkir í lífi Alexanders. Þungamiðjan í mynd da Vincis er María
með Jesúbarnið, Guð meðal manna. Þar ríkir kyrrð og jafnvægi. Út úr
myndinni má einnig lesa að fyrsti vitringurinn hafi þegar afhent gjöf sína,
gullið, þar sem Jósef heldur á loki af dýrindis skríni, og að annar þeirra sé í
þann mund að afhenda sína, þ.e. reykelsið.20 Kirkjufeðurnir og Lúther sáu í
reykelsinu tákn guðdómleika Jesú.21 Reykelsið er jafnframt tákn bænar og
fórnar (S1 141.2). Það minnir á að Kristur er æðstipresturinn sem biður fyrir
mönnunum og færir hina algildu fóm fyrir þá. Þetta er athyglisvert í sam-
hengi kvikmyndar Tarkovskys þar sem bæn og fóm gegna veigamiklu hlut-
verki í þágu björgunar mannkyns frá eyðingu kjarnorkustríðs.
Tréð á málverki da Vincis er augljóslega lífsins tré og er andstæðan við
visnaða tréð sem Alexander og sonur hans gróðursetja. í gamalli kristinni
íkonalist kemur lífsins tré gjaman fyrir með grænni laufkrónunni ásamt
visnuðu skilningstrénu.22 Vegna óhlýðni mannsins varð skilningstréð að tré
dauðans. Tréð sem Alexander gróðursetur með syni sínum er tákn dauða
þeirrar menningar sem reiðir sig alfarið á hið efnislega og eigið hyggjuvit í
formi trúar á tækniframfarir. Aðeins trú á guðlegt kraftaverk getur gætt tréð
lífi. Sagan af munknum í rétttrúnaðarkirkjunni sem Alexander segir syni
sínum áréttar það. Gamall munkur plantaði dauðu tré uppi á fjalli og fól
lærisveini sínum að vökva það daglega þar til það vaknaði til lífs. A hverjum
morgni fór lærisveinninn með fötu af vatni upp á fjallið og vökvaði tréð.
Þetta gerði hann í þrjú ár þar til dag nokkurn að hann kom að trénu í blóma.
í huga Tarkovskys er vökvun trésins tákn trúar. Hann talar jafnframt um að
upphafs- og lokaatriði myndarinnar, þar sem tréð er í aðalhlutverki, séu þeir
hápunktar sem atburðir myndarinnar gerast á milli.23 Fórnin er þannig
einnig römmuð inn með spurningunni um trú.
I kristinni hefð verður krossinn tákn fyrir lífsins tré í hinni nýju Paradís.
Hér má jafnframt minna á texta á borð við Jes 11.1: „Af stofni Ísaí mun
kvistur fram spretta og angi upp vaxa af rótum hans,“ og Jes 53.2: „Hann
rann upp eins og viðarteinungur fyrir augliti hans og sem rótarkvistur úr
þurri jörð.“ Þetta eru hvort tveggja textar sem nota myndina af trénu og
báðir eru túlkaðir sem messíasarspádómar og vísa því að kristnum skilningi
til Krists. Enski listasöguprófessorinn Martin Kemp vísar t.d. til Jes 11.1 í
túlkun sinni á trénu í verki da Vincis og bendir á að hin heilaga rót (Radix
Sanctá) hafi verið ein af mörgum myndlíkingum um Maríu mey.24 Á mynd
20 Zöllner, 2003, s. 53.
21 Hill, 1972, s. 84.
22 Larsson og Hammar, 1992, s. 115.
23 Tarkovsky, 1986, s. 224.
42