Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Page 46
Ottós stendur hann fyrir framan myndina og speglast í henni eins og fyrr og
rennur aftur saman við myndina af Maríu og Jesúbarninu. í framhaldinu fer
hann svo á fund Maríu. Þegar hann hefur lagst með henni birtist í annað
skiptið af tveimur svipmynd af afleiðingum stríðsógnarinnar, fólk hlaupandi
ráðvilt um borgarstræti, síðan sést drengurinn sofandi í rúmi og loks María
sitjandi hjá Alexander undir tré, en hefur þá tekið á sig mynd Adelaide eig-
inkonu hans. Undir heyrist huggandi rödd sem gæti verið rödd eiginkonu
eða móður Alexanders. Þá birtist enn einu sinni málverk da Vincis en nú
kemur dóttir Alexanders, Marta, eins og hlaupandi nakin út úr henni rekandi
hænsni á undan sér eftir ganginum í húsinu þeirra. Svo birtist eiginkona
hans og síðan vaknar hann í sófanum undir mynd da Vincis og segir
„mamma“. Svo virðist því að allt atriðið með heimsókninni til Maríu hafi
verið draumur. Nú er allt orðið eins og áður. Kjarnorkustríðsváin er horfin.
Hér vekur athygli hvernig heimsóknin til Maríu er römmuð inn með mynd
da Vincis af Maríu og Jesúbarninu og tilbeiðslu vitringanna og hvernig sá
friður og ró sem er í þungamiðju myndarinnar ríkir nú í kringum Alexander
þar sem hann vaknar á sófanum. Nú er aðeins eitt eftir, að standa við lof-
orðið um fómina.
Bach
Arían úr Matteusarpassíu Bachs (1685-1750) er miskunnarbæn, Erbarme
Dich, Gott. Það er athyglisvert að Tarkovsky skuli nota þessa aríu bæði í
upphafi og niðurlagi Fórnarinnar. Um er að ræða miskunnarbæn sem
sungin er í passíunni eftir að Pétur hefur afneitað Jesú þrisvar og fer út og
grætur eftir að haninn gól þriðja sinni. Að skilningi Tarkovskys hefur
nútímamaðurinn afneitað Guði í efnishyggju sinni og kallað yfir sig and-
legan dauða:
Heimur okkar manna er byggður, hannaður, samkvæmt efnislegum lög-
málum, því maðurinn hefur mótað samfélag sitt með formum dauðs efnis og
tekið á sig lögmál þess. Þess vegna trúir hann ekki á Andann og hafnar Guði.
Hann nærist á brauði einu saman. Hvernig getur hann séð Andann, krafta-
verk, Guð, ef slíkt á sér engan stað í byggingunni, ef því er ofaukið frá hans
sjónarhóli séð.26
Þessi orð eiga sér samhljóm í því sem kalla mætti „syndajátningu“ Alex-
anders hjá Maríu. Larson og Hammar lýsa samskiptum þeirra heima hjá
henni eins og ritúali.27 Hún býður honum að þvo óhreinar hendur sínar í
vatni, síðan leikur hann forleik á orgel. Að því búnu kemur syndajátningin.
26 Tarkovsky, 1986, 228.
44