Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Síða 108
uppruna og eðli trúarlegra hugmynda. Trúarbrögðin eru þá orðin æði hvers-
dagsleg hugtak yfir hugsun og hegðun sem grundvallast á hefðbundum
hugsunarferlum. Þessi ferli má kortleggja eftir viðurkenndum vísindalegum
leiðum og afmarka með hverjum hætti þessi ferli eru ólrk öðrum en sam-
bærilegum ferlum í hugsun manneskjunnar.37
í Opinberunarbókinni renna saman musterið, borgin og ljósið Guðs. Hún
hafnar mannkyninu í sinni mynd og heldur því í greipum hins endanlega
guðlega ríkis (theocracy) þar sem mörkin eru dregin milli þeirra trúuðu og
vantrúuðu. Myndin sem Opinberunarbókin dregur upp er ekki af framtíðar-
borg í einhverjum áþreifanlegum skilningi. Mynd hinnar nýju Jerúsalem er
aðeins hið óeiginlega tæki ofbeldisins sem vegna sögulegs og tímanlegs
þrýstings var staðsett á himinhvelfingunni í þeim tilgangi að hverfa ekki af
sjónarsviðinu og til að verða tilbúin að taka land þá og þegar tækifæri
gæfist. Og enn stendur Jerúsalem hátt á himni eins og komandi utan úr
framtíðinni og hún hefir tyllt sér hér og þar á jörðinni í liturgískum rytma.
Hangandi yfir höfðum jarðarbúanna er hún ógnvænleg í móðu og mistri og
minnir á sig í taktföstum hýðingum á mennskunni í úrslitatilraunum höfð-
ingja heimsins til að halda í völdin á meðan engill réttlætisins kvelst á jörð-
inni. Heilög er hún þessi borgin aðeins í skjóli hins veraldlega valds og hefir
alltaf verið. En heilagt á þér er ekkert nema naflinn og það sem þar er fyrir
neðan á meðan skynsemin fær ekki að ráða og frelsa að fyrimynd hans sem
var musteri dýrðarinnar í sjálfum sér og þekkir engin mörk að rétta hönd eða
hleypa óhreinum manneskjum beint í sína kjöltu eins og börn væru.
37 Sbr. Ilkka Pyysiainen, How Religion Works: Towards a New Cognitive Science ofReligion (Leiden: Brill,
2003), 235. Þess ber að geta að á meðan félagssögulegar rannsóknir leggja áherlsu á hlutverk trúarlegra
texta í félagslegu samhengi (Smith) og gagnrýna frumspekilega og hlutlausar (abstract) forsendur hug-
vísinda (Bourdieu), þá færast hugsunarvísindin í áttina að fyrirbærafræði þar sem skýra má ferli mann-
legrar hugsunar í ljósi tiltekinna áreita (Pyysiáinen). Hugsunarvísindi ryðja sér nú mjög til rúms í húm-
anískum fræðum en munu þau megna að skýra þá flóknu þræði sem saman mynda samfélag mannfólks-
ins spyr Burton L. Mack, The Christian Myth: Origins, Logic, and Legacy (New York, NY & London:
Continuum, 2003), 86. Mack segir, „Customary references to “calorie quotients,” “biological needs,”
acquisitive instincts,” “fear,” “aggression,” and “species protection,” are not enough to account for the
intricate systems of signs that structure human societies or the processes of socialization and tuition requ-
ired to master them” (ibid.).
106