Skagfirðingabók - 01.01.1985, Síða 24
SKAGFIRÐINGABÓK
raunin varð, og meira hefur þurft að kynda fyrir bragðið. Og
byggingin reyndist Arna „auðvitað þungur baggi“. — En þessir
meinbugir urðu húsinu ekki að falli. Jónas smiður gefur hug-
mynd um það andrúmsloft sem á hinu nýja Víkurheimili ríkti:
Mikið var um glaðværð á þessu heimili, því að hér var
margt af ungu fólki: Árni Hafstað og systir hans Sigríður
voru bæði gefin fyrir það, að andrúmsloftið á heimilinu
væri létt og upplífgandi. Oft kom það fyrir um helgar, að
stiginn var dans um stund, því að þá var oft, að hópur af
ungu fólki á leið heim til sín frá Sauðárkróki stanzaði hjá
okkur og tók þátt í dansinum (105 — 6).
Kristmundur á Sjávarborg getur um samkomu í Víkurhúsinu
19. júlí 1914. Meðal skemmtiatriða var dans, einsöngur Þor-
björns Björnssonar, en einnig knattspyrna, sem háð var utan
við túnið (Saga Sauðárkróks II, 286). Húsakynnin leyfðu slík
mannamót, og var norðausturstofan notadrjúg til mannfagnaða
og fundahalda þessi árin. Þarna var Ungmennasamband Skaga-
fjarðar stofnað eins og drepið hefur verið á. En það er stofnun
unglingaskólans, sem hæst ber, þegar steinhússins í Vík er
minnst. Tók hann til starfa aðeins örfáum vikum eftir að húsið
var fullgert.
„Ég hafði um hríð,“ segir Árni í viðtalinu við M. H. G., „haft
áhuga á því, að unglingafræðsla mætti aukast í héraðinu, en hún
var þá raunar nánast engin og enginn slíkur skóli hér í sýslu.*
Kom okkur Jóni á Reynistað saman um að beita okkur fyrir því
að reyna að bæta úr þessu, og skyldi þá skólinn vera til húsa í
hinni nýju byggingu hér í Vík, og við Jón reyna að annast
kennsluna í sameiningu. Þetta tókst, og 4. jan. 1909 komu
fyrstu nemendurnir í þetta hús. Urðu þeir alls 16 þennan vetur.
Ymsir þeirra urðu síðar þekktir menn, eins og t. d. Eggert
Olafsson Briem frá Álfgeirsvöllum, Gunnar í Vallholti, Kle-
* Rétt er að fram komi, að unglingaskóli var stofnaður á Sauðárkróki
haustið 1908. Höf.
22