Skagfirðingabók - 01.01.1985, Page 110
SKAGFIRÐINGABOK
hans Steinunnar Pétursdóttur. Var Rannveig systir þeirra Sig-
urðar málara og séra Péturs annálaritara í Grímsey. Hún giftist
1847 Sigurði Tónssyni og bjuggu þau lengst á Ytri-Hofdölum
1864-1876, að Sigurður dó.
2. Hér hvílir Guðrún Anna önduð,
eftir því sem ég hefi frétt.
I líferni sínu var hún vönduð,
víslega gegndi sinni stétt,
giftist og átti einhvern mann,
aldrei sá ég né þekkti hann.
Guðrún Anna Ásgrímsdóttir kona Jóns, fædd 1845 í Neðra-
Ási, dáin 1909 á Skúfsstöðum. Hún var dóttir Ásgríms Árna-
sonar bónda í Neðra-Ási og síðast Hofstaðaseli, og konu hans
Þóreyjar Þorleifsdóttur.
3. Una Sigurðardóttir dáin
dylst undir þessum bautastein.
Hana aldregi þjáði þráinn,
þó að hún væri nokkuð sein.
Hún fór sér aldrei ógnarhart,
át og skrafaði fremur spart.
Una Sigurðardóttir systir Jóns, fædd 1865 á Ytri-Hofdölum,
dáin 1953 á Kálfsstöðum. Una var lengi á Reykjum í Hjaltadal,
unnusta og barnsmóðir Friðriks Jóhannessonar á Reykjum.
Friðrik var lamaður síðustu 9 æviárin og dó 1909. Eftir að
Sigurveig dóttir þeirra giftist og hóf búskap með Árna
Sveinssyni á Kjarvalsstöðum og síðar Kálfsstöðum, fór Una til
þeirra og dvaldi hjá þeim til æviloka.
4. Hérna liggur hún Gróa grafin,
greind svona rétt við meðallag.
Hún var aldrei við ýta skrafin,
iðjusöm bæði nótt og dag.
108