Skagfirðingabók - 01.01.1985, Page 112
SKAGFIRÐINGABÓK
víðar. Guðlaug fór ársgömul í fóstur að Ytri-Hofdölum, fylgdi
síðan fjölskyldunni að Skúfsstöðum 1883 og var þar nokkur ár.
Síðar barst hún til Vestfjarða og giftist þar 1901 Sigurði Sigurðs-
syni sjómanni í Hnífsdal.
7. Hér er Benedikt geymdur grafinn,
gekk hann sáttur við örlögin.
Uti í fjósi er harmur hafinn,
hugsa kýrnar um góðan vin.
Ætíð hann snemma á fætur fór,
fús til að starfa í tóft og flór.
Benedikt Hannesson vinnumaður, fæddur 1862 á Kjarvals-
stöðum í Hjaltadal, dáinn 1903 í Vesturheimi. Hann var sonur
Hannesar Þorsteinssonar bónda á Kjarvalsstöðum og konu
hans Jóhönnu Ingimundardóttur. Benedikt varð búfræðingur
frá Hólum 1887, en giftist 1892 Sigrúnu Daníelsdóttur frá
Framnesi. Hóf búskap á Framnesi 1894 og var síðan á nokkrum
jörðum, síðast í Brekkukoti ytra í Blönduhlíð og fór þaðan til
Ameríku árið 1900.
8. Nú er hann Jón til náða genginn,
níu mánuði bóndi réð.
Syrgði víst karlinn svanni enginn,
sá hafði fremur óblítt geð.
Makráður, kaldur, matheill var,
myndaði vísur leirburðar.
Þetta er sjálfslýsing Jóns Sigurðssonar bónda.
9. Þessi minningarljóð því lýsa,
langt mun að fyllist komið skarð.
Lengi má syrgja landið Isa,
ljótum það skaða fyrir varð.
Ytri-Hofdalafólk er frá,
fótsporum þess ei margir ná.
110