Skagfirðingabók - 01.01.1989, Side 141
BRUNINN Á HÓLUM í HJALTADAL
Hvammstanga áleiðis til Skagafjarðar Guðmundur Sigurðs-
son, sem lokið hafði lagningu miðstöðvarinnar í kaupfélags-
húsið, og Pétur Sigurðsson frá Mel. Fleiri slógust í för með
þeim, mun það fólk hafa verið þar úr sveit eða nágrenni
Hvammstanga og kunnugt um þær slóðir. Nokkur logn-
snjór var á og veðurútlit slæmt, en hér var þó um byggðir að
fara.
Eins og uppi á Holtavörðuheiði byrjaði að snjóa í logni,
en snögglega skall á hörkustórhríð. Komust þeir félagar
heim að Gauksmýri í Línakradal, en þangað mun vera um
tveggja klukkustunda gangur frá Hvammstanga að kunn-
ugra sögn. I Gauksmýri voru þeir veðurtepptir í þrjú dæg-
ur, en héldu þá ferð sinni áfram til Skagafjarðar.1
Lokaorð - Veturinn 1926-27
Eins OG fram kemur í frétt Morgunblaðsins um brunann,
var strax ákveðið, að skólinn skyldi starfa um veturinn.
Ljóst var þó, að þröngur yrði kosturinn hvað húsrými
snerti í ytra húsinu, þegar við bættust nær 30 manns í hóp-
inn, sem fyrir var, þeir sem athvarf höfðu átt í hinu brunna
húsi.
Ekki þótti fært vegna þrengsla að taka við nýsveinum.
Var þeim vísað frá, að tveimur undanteknum. Annar var
kominn, þegar bruninn varð, og er hans getið í frásögunni.
Hinn pilturinn, Jóhannes N. Þorsteinsson frá Eyjólfsstöð-
um í Vatnsdal, var að mig minnir lagður af stað til Hóla og
vildi ógjarnan hverfa frá. Við urðum því 15 í skólanum.
1 Yfirskrift þessa þáttar, „Ekki verður feigum forðað", er ekki alveg út í
hött. Ólafur Hjaltested beið norðan heiðar í 2-3 daga til að verða pósti
samferða suðuryfir. Þessa daga var veður og færi hið sæmilegasta og
mannaferðir suður um. Má því ætia, að hann hefði sloppið heill á húfi,
hefði hann haldið ferð sinni áfram viðstöðulaust, en ekki beðið pósts-
ins. Hann mun hafa dvalizt þessa daga á Stað og í Grænumýrartungu.
137