Skagfirðingabók - 01.01.1989, Page 155
MINNINGAR ÚR SKAGAFIRÐI
í UPPHAFI 20. ALDAR
eftir KRISTÍNU PÁLMADÓTTUR
DÝRMUNDUR ÓLAFSSON skráði
Minningar þessar eru skráðar eftir frásögn Kristínar Pálmadóttur fyrrum
húsfreyju á Hnausum í Austur-Húnavatnssýslu. Hún fæddist 10. apríl
1889 að Hvammi í Langadal. Foreldrar hennar voru hjónin Jórunn
Sveinsdóttir frá Starrastöðum og Gilkoti og Pálmi Erlendsson, Guð-
mundssonar frá Móbergi í Langadal; frá honum er komin Móbergsætt.
Kristín fluttist frá Hvammi á fyrsta ári að Vesturá í Laxárdal og átti þar
heima til tólf ára aldurs, að hún fór með foreldrum sínum til Sauðár-
króks.
Kristín var húsfreyja á Hnausum í 52 ár. Maður hennar var Sveinbjörn
Jakobsson, Þorsteinssonar frá Grund í Svínadal, og konu hans, Sveinsínu
Sveinbjörnsdóttur, prests í Árnesi á Ströndum. Þau áttu sex börn og eru
fimm þeirra á lífi. Sveinbjörn lézt 24. október 1958, 79 ára gamall. Kristín
dó 31. marz 1985. Aldarafmæli hennar var síðastliðið vor.
Það VORU mikil viðbrigði að koma úr afskekktri sveit til
Sauðárkróks 1901, en þar birtist mér alveg nýr heimur, þótt
kauptúnið væri ekki stórt á nútíma mælikvarða, en þá sjö-
unda stærsta kauptún landsins. Við fengum þar sæmilegt
húsnæði, en atvinna var stopul á þessum árum. En faðir
minn var duglegur við hvað sem var, bæði til sjós og lands.
Hann var oft í kaupavinnu í sveitinni á sumrin, en fór svo
suður á vertíð seinni part vetrar.
Við vorum þrjú systkinin á lífi, tvö dóu í bernsku, þau
151