Skagfirðingabók - 01.01.1989, Page 180
SKAGFIRÐINGABÓK
ónógra fóðurbirgða og um fjölgun hrossa fyrir mark-
aðsleysi. Skýrslur um þessi atriði hafa borizt frá 9
hreppstjórum. Einnig hafa hreppstjórar úr Haganes-
og Skarðshreppi upplýst, að ekki hafi orðið tilefni til
skýrslusöfnunar í þeim hreppum.
Frá Hóla- og Sauðárkrókshreppum hafa engar
skýrslur eða upplýsingar borizt.
Hér á eftir fer útdráttur úr þeim skýrslum, sem fyrir
hendi eru. Skýrslur frá hreppstjórum eru til í skjölum sýsl-
unnar, en ég hef undir höndum skýrslu hreppstjórans í Lýt-
ingsstaðahreppi. Hún er undirskrifuð 31. desember 1943 af
Jóhannesi Kristjánssyni, Brúnastöðum, glöggt færð og
sundurliðuð.
Yfirlit um skaðana kemur fram í skýrslu, sem prentuð er í
sýslufundargerð: Heyskaðar 9107 hestar. Fjárskaðar 1557
kindur og 17 hross. Fækkun nautgripa vegna fóðurskorts
276. Fækkun sauðfjár af sömu ástæðum 3507 kindur og
fjölgun hrossa fyrir markaðsleysi 484.
Neðan við þessa skýrslu er skráð: „Þau hey ein eru talin á
skýrslu þessari, sem algjörlega urðu úti. I fjárskaðadálkun-
um er aðeins talinn sá peningur, sem vitað er um að fennti í
hríðinni 24. september. Vanheimtur peningur ekki með tal-
* _ «
mn.
Engir fjárskaðar eru skráðir í hreppum út að austan, frá
Holtshreppi fram að Viðvíkurhreppi, nema Hofshreppi. Þar
er fennt fé talið 115 kindur og heyskaðar 1590 hestar.
Heyskaðar eru þó taldir í Fellshreppi 1809 hestar og Viðvík-
urhreppi 645 hestar.
Mestur varð heyskaði í Akrahreppi, 2182 hestar, í Staðar-
hreppi 1428 hestar, í Rípurhreppi 1120 hestar og Seyluhreppi
1077 hestar.
Hross sem fórust voru 5 í Akrahreppi, 5 í Lýtingsstaða-
hreppi, 3 í Staðarhreppi, 2 í Skefilsstaðahreppi og 2 í Rípur-
hreppi.
176