Jón á Bægisá - 01.04.1997, Page 54

Jón á Bægisá - 01.04.1997, Page 54
William D. Valgardson sjaldgæfir og villikettir í héraðinu milli Manitobavatns og Winnipeg- vatns. Við höfðum enn ekki rennandi vatn og ef við fórum í vikulegt bað okkar hjá Einari á sunnudögum þurfti ekki að bera inn vatn og hita það á eldavélinni, sem var mikið og tímafrekt verk fyrir fimm barna móður. Þetta kvöld þegar mamma var að þvo mér um hárið sagði hún mér frá því að í kreppunni hefði bankinn tekið jörð foreldra þeirra upp í skuld og þótt jörðin færi í eyði og fjölskyldan yrði heimilislaus, leyfði bankastjórinn þeim ekki að vera í íbúðarhúsinu eða sá til næstu uppskeru. Þótt hún væri aðeins þrettán ára, neyddist móðir mín til að fara til Winnipeg og gerast vinnukona. Það sem hún mundi best frá þeim tíma var hve mikið hún þurfti að vinna og hvernig hún, sjúk af hræðslu og einmanaleika, lokaði sig inni á baðherbergi grát- andi og með uppköst. Það litla kaup sem hún fékk sendi hún foreldr- um sínum. Einar var fjórum árum eldri. Hann hafði ætlað á land- búnaðarskóla. Þess í stað neyddist hann til fara að heiman. Næstu árin var hann á þvælingi fram og aftur um Kanada sem laumufarþegi hangandi utan á lestum, snapandi dagsverk, stelandi úr görðum og jafnvel betlandi, þangað til hann fékk vinnu í námunum og gat að lokum unnið sér nóg inn til að kaupa nýja bújörð. Þegar einhver kom út af baðherberginu, hrópaði Einar, jafnvel þótt við værum að borða kvöldmat - samskipti hans við aðra fólust gjarn- an í hrópum - „Jæja, hvað lærðirðu síðustu fimmtán mínúturnar?" Og þá vorum við byrjuð. Klukkustundum saman rökræddum við þann fróðleik um stjórnmál, trúarbrögð eða fjármál sem einhver hafði verið að lesa. Veggirnir í húsi hans voru þaktir bókum og með- an við rökræddum, stundum fimm, sex eða fleiri — hver sem vildi fé- lagsskap gat litið inn - tók hann bækur úr hillunum, opnaði þær og rak okkur í rogastans með staðreyndum. Hvaða málefni voru rædd eitthvert ákveðið kvöld réðst af því hve margir gestanna fóru á salernið. Við vorum kannski í miðjum rökræðum um flutningsgjöld og undirokun vesturhéraðanna vegna hagsmuna austanmanna þegar heyrðist sturtað niður úr salerninu, dyrnar voru opnaðar og frændi minn hrópaði: „Jæja, hvað höfðu vinir hins óbreytta borgara að bjóða í dag?“ Og óðara vorum við komin inn á nýja braut. Þessum rökræðum lauk aldrei heldur sveigðust þær og breyttust, stöðvuðust um stund og hófust svo aftur. Sumar þeirra héldu áfram árum saman, með nýjum sönnunum, nýjum skoðunum, þátttakend- ur breyttu stundum afstöðu sinni til mála og hurfu síðan til fyrri af- stöðu á ný. Knúinn vanmáttarkennd og reiði gat ég ekki haldið mig utan rökræðnanna, en gat ekki heldur rekið frænda minn á gat - þótt ég leitaði uppi heimildir sem styddu skoðun mína. Héraðsbókasafn- ið með blöndu af nær ólæsilegum sígildum skáldsögum (Sir Walter Scott) og rusli (kúrekareyfurum) kom að takmörkuðum notum og 52 Jfev d ddœpdd - TÍMARIT ÞÝÐENDA 1*1997
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.