Jón á Bægisá - 01.04.1997, Side 81

Jón á Bægisá - 01.04.1997, Side 81
Minningar um súkkulaðisósu að sínu og kyssti hann löngunarfull um leið og hann þrýsti lærinu á milli fóta henni og hló að henni af því að hún varð að vera hljóð þótt hana langaði til að æpa og draga hann með sér niður á gólfið og ljúka þar því sem hafði hafist í þessu litla loftlausa herbergi þegar hún fann þennan fiðring fyrst, en hún gat það ekki því skyldfólkið var niðri og beið með kaffi og vínartertu eftir að fá að sjá tilvonandi eiginmann hennar. Trúlofuð! Ógift og óspjölluð á þeim dögum. Náin, en ekki hold- lega. Kate man enn eftir eftirvæntingunni, girndinni sem varð sterk- ari með hverjum deginum sem hún og Tom könnuðu hvort annað af slítandi nákvæmni, en fóru aldrei alla leið fyrr en eftir að þau voru gift. Skilur nokkur núna hve forleikurinn er sterkur? hugsar Kate. Eftir kaffið fór Kate með Tom í lyfjabúðina og sá hvernig Jóhann frændi velti því fyrir sér hvort hann ætti að gera að gamni sínu við Tom með því að leggja olnbogann á öxlina á honum og ákvað að sleppa því af því að Tom var svo miklu hærri en hann. Hún og Tom höfðu sest við ísbarinn og horft á afgreiðslustúlkuna með lítil flöt brjóst tilreiða einn súkkulaðiísdrykk handa þeim sameiginlega, með aðkeyptri súkkulaðisósu. Þegar Kate rifjar þetta upp veltir hún aftur fyrir sér, og nú með skýrari spurningum en þegar hún var barn, dálæti Jóhanns frænda á konubrjóstum. Hún man vel hve knýjandi þrá hennar eftir Tom var. Hún man hvernig brjóst hennar lyftust þegar hann horfði á þau. Hún man hvernig hún fann þau stífna við snertingu handa hans. Hún man hvernig allur líkami hennar þráði hann þegar geirvörturnar þrútnuðu í munni hans þegar hann saug þær. Hún man að brjóst hennar stækkuðu við heit atlot hans. Hafði Jóhann frændi haft slík áhrif á Siggu frænku? Hafði liann verið eins hrifinn af brjóstum hennar og Tom af brjóstum Kate? í þá daga, svo heit, altekin þrá, reyndi hún í fyrsta sinn að skilja kynlíf annars fólks, einmitt þegar hún var að uppgötva sitt eigið. Hún hafði aldrei hugsað mikið um kynlíf áður, sérstaklega ekki síns eigin skyldfólks. Hún fór að hugsa um annað fólk, hvað það væri við aðra sem vekti þrá þess, kveikti kynhvöt þess og gerði það að þrælum ástríðunnar, hvað í ósköpunum. Eftir að hún giftist hafði hún einhvern til að velta vöngum með. Hún og Tom ræddu um annað fólk og hegð- un þess og stundum létu þau sem þau væru önnur en þau voru, örv- uðu hvort annað á mismunandi hátt. En aldrei ættingjar. Ættingjar eru ekki annað fólk. Veruleikinn á ekki við um ættingja, hugsar Kate. Veruleiki Kate er ekki lengur til. Hann er til í litla dimma risher- berginu þar sem Catherine fann drauma og losta Jóhanns og sína eig- in kynhvöt vakna yfir kassa með máluðum myndum og í birgða- geymslunni með lyktinni af liveitipokum og prentsvertu nýrra myndasagna og af súkkulaðisósu. d Jfíaytóá - HVAT? TALA THU ISLENZKU? 79
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.