Jón á Bægisá - 01.04.1997, Side 84

Jón á Bægisá - 01.04.1997, Side 84
Kristjana Gunnars af góðverkum náttúrunnar. Svo var sársaukinn. Hann var verstur, hann mátti missa sig. Sársauki í meltingarfærunum sem kom í veg íyrir að hann slakaði á. Kannski hefur sársaukinn sér það þó til máls- bóta að hann heldur fólki á verði. En á verði gagnvart hverju? Það var nú ekki eins og hermenn væru handan við næsta hvarf og nálguðust. í gluggakistunni fyrir framan hann voru ýmsir minjagripir úr ferð- um sem hann hafði farið. Þar var penni, gjöf frá vini hans í Manitoba sem var að reyna að vera rithöfundur. Glas frá öðrum vini sem var að reyna að vera ritstjóri. Haha! Hann var ekki yfir það hafinn að gera að gamni sínu við sjálfan sig í næturkyrrðinni meðan fjölskyldan svaf. Raunar var Jón bara góður ritstjóri, þegar allt kom til alls. Jafn- vel þótt hann hefði neitað að birta síðasta leirburðinn sem hann hafði sent honum. Hann kveikti á litla lampanum við hillurnar. Það var gott að dreifa huganum með því að glugga í hugsanir einhvers annars, hugsaði hann og lauk upp glerhurðinni að bókaskápnum. Hann dró fram þykka bók sem hann hafði nýlega fengið frá vini sínum - verkfræð- ingi í Chicago. Ritverk Sir Walters Scott. Hann settist aftur í leður- stólinn og opnaði bókina þar sem bókamerkið var. Þessi maður, þessi Walter Scott var ótrúlepa margorður. Hann óð elginn eins og hann hefði endalausan tíma. Arin líða, andlitið verð- ur hrukkótt, hárið gránar, útlimir stirðna og verða beinaberir. Hjart- að slær örar, meltingarfærin neita að starfa. Nei, lífið er ein samfelld afturför frá hátindi fáfræðinnar. Ekki eins og þetta nútímaskáld, Bandaríkjamaðurinn T.S. Eliot. Sá var nú torskilinn, hann var enn ekki alveg kominn upp á lagið með að lesa verk hans. Skinið frá lampanum var dauft, en þegar það bættist við ljósið sem barst inn um gluggann varð lesbjart inni. Of mikið ljós var óþarft. Það kynni að skína gegnum þunn tjöldin sem voru á milli hans og eiginkonunnar. Hún gæti vaknað og þá yrðu þau bæði þreytt næsta morgun. Það var nóg að annað þeirra svæfi ekki. Einhver þurfti að halda hlutunum gangandi. í hvert sinn sem hann fletti við blaði var eins og þruma ryfi nætur- kyrrðina, svo alger var hún. Andardráttur hans sjálfs virtist of hávær, flautið í nösunum heyrðist allt of vel á nóttu sem þessari. Hann leit upp úr bókinni og starði út í tómið. Ef til vill ætti hann að hripa nið- ur eitt ljóð til, hugleiddi hann. Nei, ekki núna. Þau voru orðin allt of mörg. Þetta var að fara úr böndunum og þar að auki neitaði Jón að birta þau. Þessu verður að ljúka, hugsaði hann. í miðjum þessum tilgangslausu draumórum, heyrði hann barið létt á gluggann. Var hann að dreyma? Aftur var barið og í þetta sinn með fingurgómum á glerið. Hann stóð upp og gægðist út. Jú, nema hvað, hann sá andlit og hönd sem veifaði til hans. Hver gat þetta ver- ið? A þessum tíma sólarhrings. 82 á Æayáá - TÍMARIT ÞÝÐENDA 1*1997
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.