Jón á Bægisá - 01.04.1997, Page 61

Jón á Bægisá - 01.04.1997, Page 61
Besta helgi ævinnar mér það. Fölbrúnu hárinu, sem er næstum einsog hárið á Níkí forð- um, er safnað í hnút í hnakkanum. Samfestingurinn hennar er blettaður af umþaðbil tveggja daga tómatsósuslettum. Það er ekki Níkí líkt að láta hana vera óhreina. Venjulega heldur hún henni og öllu öðru á þessari heimilisnefnu svo hreinu, að hægt væri að nota toppinn á sjónvarpstækinu fyrir matardisk. Eg baða Kristel. Þegar hún er aftur ilmandi, einsog vorgras í Assiniboine-garði eftir regnskúr, læt ég hana leggjast og fá sér blund. Hún virðist raunverulega ánægð með að ég er hér, hjúfrar sig undir sænginni og heldur fast um Fisher-Price-hundinn, sem ég verð að kyssa áðuren ég kyssi hana. íbúðin er hljóðlát og allt er orðið óhreint síðan ég var hér fyrir að- eins einni viku. Ég afræð að hreinsa til, afþví ég þoli ekki að sitja að- gerðalaus. Maður fer að rifja upp. Það gerir mann taugaóstyrkan. Af einhverri ástæðu verður mér hugsað til jólanna þegar pabbi var drukkinn og lamdi mömmu. Það var sex mánuðum eftirað Bekka dó, en það er ekki nein haldbær skýring. Rakel (það er ég) og Rebekka. Ég á eldri systur, Veroniku, og við köllum hana öll „Ronnie". R-in þrjú. Hvílíkur brandari. Rebekka er dáin. Ronnie vinnur í K- markaðnum, og ég þræla einsog skepna til að komast gegnum stærð- fræðina og þrjár raunvísindagreinar í þriðja bekk, svo ég þurfi ekki að vélrita farmpantanir það sem eftir er ævinnar. Einsog ég hef þeg- ar sagt ykkur, var Bekka gáfnaljósið. í fyrra keypti Randý ryksugu handa Níkí í örlætiskasti, svo hún gæti unnið „kvennaverkin", geri ég ráð fyrir. Ég velti því fyrir mér, að það hljóti að hafa kostað hann umþaðbil mánaðarbjórútlát að kaupa handa henni ryksuguna, um leið og ég reyti hár og ryktægjur af burstaendanum á málmslöngunni. Að mér hvarflar, að þráttfyrir alla mína viðleitni kunni Níkí að vera í þann veginn að fara yfirum. Hversvegna skyldi hún að öðrum kosti fara út einsog hún gerði - einsog hún ætlaði sér af láta fyrsta náunga sem gæfi henni merki nota sig? Stúlkur einsog Níkí eru um allt. Einhver meiðir þær. Þær fara út til að láta meiða sig aftur. Er það þeim að kenna að frá byrjun var komið ffam við þær án minnstu virðingar? Jafnvel gulrætur fá betri meðferð en sumar stúlkur sem ég hef kynnst. Mig langar að halda Kristel frá öllu þvílíku. Ég vildi að til væri ein- hver staður þarsem hægt væri að loka krakka inni. Einhver öruggur staður einsog tveggja ekru garður oná gríðarstórri byggingu. Og þar væru engar lyftur. Krökkunum yrði bara lyft upp með stórum krönum og sleppt lausum með litlu nestiskörfurnar sínar. Nokkrum árum síð- ar yrði náð í þá, og þá væru þeir orðnir nógu stórir og nógu harðgerir til að segja öllum ágengum nöggum að hlaupa fyrir veraldarbjörg. Um hálffimmleytið er ég búin að ryksjúga íbúðina, hreinsa eina fást d Jföapáá - HVAT? TALA THU ISLENZKU? 59
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.