Jón á Bægisá - 01.04.1997, Qupperneq 118

Jón á Bægisá - 01.04.1997, Qupperneq 118
BiII Holm Svo var það nánast fyrir tilviljun að ég komst á snoðir um fortíð hennar. Það var löngu eftir að bæði hún og foreldrar mínir voru látn- ir. Sara er jörðuð í íslenska kirkjugarðinum nokkru fyrir sunnan Minneota. Þar eru flest nöfnin ósköp venjuleg hversdagsnöfn einsog Gíslason, Hallgrímsson, Björnsson, Hrafnsson, Jökull, en þar eru líka sérkennileg nöfn einsog Schram og Kline. Eg pældi ekkert í því þeg- ar ég var strákur; ég hélt að guð hefði hagað því þannig að aðeins Is- lendingar enduðu á þessum útvalda stað og að honum væri treystandi til að úthluta öðrum sitt pláss annars staðar. En dag nokkurn var ég á gangi um kirkjugarðinn með fjölskyldu af virðuleg- um eldri borgurum af íslenskum Minneotastofni. Þau þekktu alla á staðnum og ávörpuðu þá með nafni þegar þeir stikluðu yfir steinana. „Sjáðu þetta,“ sagði Björn. „Einhver hefur snyrt gröf Skunksins og gróðursett blóm. Það er meira en sú skepna á skilið.“ „Skunkurinn?" Hann benti á gröf manns sem dó árið 1945. „Af hverju er hann við hliðina á Söru?“ spurði ég. „Vissirðu það ekki? Hann var sonur Söru. Hún var þjónustustúlka sem kom frá Islandi með Christian Gunter Schram, sem var þýskur að uppruna, ekki íslenskur, gamall okurkaupmaður. Hann barnaði Söru og skildi hana svo allslausa eftir. Hún var fátæk og fávís og ól strákinn upp ein. Hann varð fyllibytta, stal frá mömmu sinni, fór illa með hana og drapst úr drykkju." „Og hann var kallaður Skunkurinn af því ..." „Það átti vel við hann.“ Hinn visni og skítugi líkami Söru Kline reis upp í huga mér; ég fann fnykinn af hálfreyktum stubbum úr skjóðu hennar og kámuga krumlu hennar á kinninni. Þetta var sagan sem mamma vildi aldrei segja og ástæða þess að mér var kennt - og það af þrotlausri smá- munasemi - að umgangast hana einsog greifynju. Hún hafði, kærar þakkir, mátt þola nóg í þessum heimi og þurfti ekki á frekari smán að halda á leið sinni úr honum. Siðmenning er vísast ekki fólgin í því að vita hvernig eigi að bregðast við í fyrsta sinn, frekar í hinu að reyna (án mikillar vonar) að vera skynsamur og nógu mannlegur til að bæta fyrir misgjörðirnar þegar þær mæta þér á nýjan leik. Á frummálinu heitir sagan In the Garden. EinarMár Guðmundsson íslenskaði. 116 d - TÍMARIT ÞÝÐENDA 1*1997
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Jón á Bægisá

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.