Þjóðmál - 01.12.2009, Blaðsíða 24
22 Þjóðmál vetur 2009
Þegar ég var unglingsstúlka var ég send sumarlangt til ættingja minna við
Winni peg vatn í Manitoba . Síðar á ævinni
átti ég eftir að koma oft á þessar slóðir,
jafnvel upp lifa Íslendingadaginn í Gimli,
dansa fram á nótt og spranga um í upphlut
ömmu minnar .
Það er því svolítið merkilegt að vera komin
aftur á þessar slóðir og ferðast í huganum til
sömu staða með Christinu Sunley, höfundi
bókarinnar Freyjuginning, sem kom út á
þessu ári og hefur vakið mikla athygli vestan
hafs . Christina, rétt eins og ég, átti skyldfólk,
sem settist að við bakka vatnsins og reyndi
að draga fram lífið við harðan kost . Margt af
mínu fólki iðraðist þess alla tíð að hafa yfirgefið
gamla landið, hafði jafnvel samviskubit yfir að
hafa hlaupist undan skyldum sínum, eins og
einhver orðaði það . Íslendingar beggja vegna
Atlantshafsins gátu aldrei fyrirgefið . Og enn,
öllum þessum árum síðar, er þessi hugsun
ofarlega í hugum fólks . Christina glímir við
hana í þessari bók . Hún er þriðja kynslóð
Íslendinga í Kanada, hefur glatað málinu
og finnur lítið til skyldleika með íslensku
þjóðinni .
Þetta er ekki bara venjuleg örlagasaga
tveggja systra í henni Ameríku . Þetta er
saga þeirra kynslóða Íslendinga, sem flúðu
land sitt í lok nítjándu aldar og settust að á
sléttum Manitoba í Kanada . Og áttu aldrei
afturkvæmt . Þetta er bók um ferðalanga
í framandi umhverfi í leit að uppruna
sínum . Þeir eru með söguna á bakinu, goðs
öguættjörðina, Ísland hugans og hjartans .
Þeir eru afkomendur landnemanna og „það
er ekki hægt að eiga nema eina móður og eitt
móðurland“ .
Freyja er alin upp í dæmigerðu amerísku úthverfi, en á hverju sumri fer hún
ásamt móður sinni til Gimli, sem er lítið
íslenskt þorp við Winnipegvatn, og dvelst á
heimili ömmu sinnar . Afi Freyju er látinn,
en hafði verið höfuðskáld Vesturfaranna,
vinsæll og mikils metinn . Á heimili ömmu
lifir fólkið í minningunni um gamla landið .
Það talar íslensku, fer með skáldskap .
Sæmundur fróði, Auður djúpúðga og Egill
Skallagrímsson eru heimilisvinir . Fólkið
vitnar stöðugt í fornkappana og jafnvel hin
heiðnu goð . Freyja sogast inn í framandi
Í tilefni útkomu bókarinnar Freyjuginning
eftir Christinu Sunley
Bryndís Schram
Í leit að sjálfri sér