Þjóðmál - 01.12.2009, Blaðsíða 25
Þjóðmál vetur 2009 23
veröld álfa og trölla . Hún lifir sig inn í
skáldskap forfeðranna og lærir utan bókar
ljóð afa síns . Áhrifavaldurinn í þessu sumar
lífi Freyju er Birdie, móðursystir hennar,
dularfull og töfrandi listakona, sem enn býr
í föðurhúsum .
Birdie er hrífandi persónuleiki – við fyrstu
kynni . Hún heillar alla með leiftrandi gáfum,
frásagnarsnilli, hugmyndaríki og líkamlegu
atgervi . Hún er fegurðardís og veit af því;
nýtir sér það . Hún hefur átt marga vonbiðla,
hafnað öllum og býr enn hjá Siggu mömmu .
Er listakona, vakir um nætur, skrifar óð til
lífsins og elskar allt sem íslenskt er .
Við höfum þó ekki verið lengi innan dyra í
þessu húsi ömmu, þegar við skynjum veikleika
Birdie . Hún er ýmist hátt uppi eða langt niðri
– og þá er hún jafn andstyggileg, kaldhæðin
og miskunnarlaus og hún var dásamleg áður .
Birdie er að sumu leyti snillingur, en samt svo
sjúk, að hún er ófær um að sjá um sig sjálf .
Mamma hennar er sú eina, sem kann að tala
hana til .
Höfundur bókarinnar nálgast þessa konu af
miklum skilningi, samúð og nærfærni . Hún
gæðir hana holdi og blóði . Hún ilmar af lífi og
lit langt út fyrir síður bókarinnar, hvort sem
hún er í maníu eða þunglyndi . Það þarf kjark
og kunnáttu til að geta fjallað svo opinskátt um
geð hvarfa sýki (bipolar disorder) .
Íslendingadagurinn í Gimli er hápunktur sumarsins . Þá eru bakaðar pönnukökur og
vínartertur, fjallkonan klæðist skautbúningi og
Skáldsagan Freyjuginning eftir bandaríska
VesturÍslendinginn, Christinu Sunley,
kom út á ensku fyrr á þessu ári og hefur
fengið frábærar viðtökur vestanhafs, sbr .
eftirfarandi brot úr blaðadómum:
„Sumar skáldsögur, til viðbótar við allt
annað sem þær búa yfir, eru einfaldlega
frábær félagsskapur: fyrsta skáldsaga
Christinu Sunley er slík saga /…/
Sunley hefur skapað persónur sem
við fylgjumst með af forvitni og
væntumþykju /…/ stórhuga verk
uppfullt af safaríkum atburðum“ .
The San Francisco Chronicle
„Þessi mikla uppvaxtarsaga státar
af kraftmiklum persónum og
digrum sjóði munnmæla /…/
sem gerir þessa myrku, köldu
fjölskyldusögu undarlega hrífandi
og tilþrifamikla .“
Publishers Weekly
„Freyjuginning er svo trúverðug
og sannfærandi að maður
stendur á öndinni .“
LögbergHeimskringla