Þjóðmál - 01.12.2009, Blaðsíða 16
14 Þjóðmál vetur 2009
Vantraustið og tortryggnin sem nú ríkir í samfélaginu á sér aðdraganda . Löngu
fyrir hrun var búið að eitra opinbera umræðu .
Lygi, baktjaldamakk og undirferli eru þáttur
í stjórnmálum á hverjum tíma . Þegar ofgnótt
lánsfjár, einkavæðing með tilheyrandi flutningi
eigna frá hinu opinbera til einstaklinga og
uppstokkun valdakerfa bætist við er komin
skaðræðisstaða sem býður heim ófögnuði .
Samfylkingin er stofnuð um það bil sem
útrásin tekur að láta á sér kræla . Flokkurinn
reynir fyrst fyrir sér 1999 með döprum
árangri, nær ekki fylgi þeirra flokka sem
lögðu sig niður fyrir vinstritilraunina .
Fjórum árum síðar er öllu tjaldað til .
Meirihlutasamstarfinu í Reykjavík er teflt í
tvísýnu með að því að sitjandi borgarstjóri
og oddviti Reykjavíkurlistans, Ingibjörg
Sól rún Gísladóttir, verður sérstakt forsætis
ráð herra efni Samfylkingarinnar . Þar með
sveik Ingi björg Sólrún vopnabræður sína í
höfuð borgardeild Framsóknarflokksins og
Vinstri grænna og óháðra sem allir áttu hlut
í Reykjavíkurlistanum .
Borgarnes var vettvangur fyrir Ingibjörgu
Sólrúnu til að stimpla sig inn í landsmálin .
Það gerði hún skammlaust með tveim eftir
minnilegum ræðum, Borgarnesræðu fyrri
og síðari . Í nýrri bók Óla Björns Kárasonar,
Þeirra eigin orð, er tilvitnun af heimasíðu
Ögmundar Jónassonar sem setur Borgarnes
ræður Ingibjargar Sólrúnar í sam hengi:
Það er merkilegt hvað forsætisráðherraefni
Samfylkingarinnar gerist glöggsýn þegar
hún ríður um Borgarfjarðarhérað . . . Á
flokksráðstefnunni í febrúar fann for
sætisráðherraefnið þrjá einstaklinga sem
núverandi forsætisráðherra, Davíð Odds
son, og ríkisstjórn hans hefur leikið
einstaklega grátt . Á þessum einstaklingum
hefur forsprakkinn Davíð traðkað misk
unnar laust og dregið þá á bólakaf niður
í svaðið . Þetta eru þeir heiðursmennirnir
Jón Ólafsson í Norðurljósum, Jón Ásgeir
Jóhannesson í Baugi og Sigurður Einarsson
í Kaupþingi . Alþýða þessa lands veit jú,
rétt eins og forsætisráðherraefnið, að
þarna eru á ferð einmuna hugsjónamenn
sem einvörðungu hafa barist fyrir bættum
kjörum almennings en aldrei hugsað um
eigin hag .
Páll Vilhjálmsson
Hráefni um hrunið
Í tilefni nýrrar bókar Óla Björns Kárasonar, Þeirra eigin orð – fleyg orð
auðmanna, stjórnmálamanna, álitsgjafa og embættismanna í útrásinni .