Þjóðmál - 01.12.2009, Blaðsíða 33

Þjóðmál - 01.12.2009, Blaðsíða 33
 Þjóðmál vetur 2009 31 þar sem fjallað er um hvað er að gerast hjá einstaklingnum í gegnum lengra tímabil, sigra og ósigra . Ég hef lesið margar frásagnir af einstökum hlaupum sem hafa hjálpað mér mikið, sérstaklega þær frásagnir þar sem eitthvað fór úrskeiðis . Gegnum árin hefur byggst upp nokkur reynsla og þekking á því sem varðar hlaup og því sem tengist hlaupum . Ég er til dæmis alveg viss um að breytt mataræði hefur haft mikið að segja hvað varðar aukið þol líkamans gegn sívaxandi álagi . Mér fannst því ég hafa tækifæri til að gefa hlaupaheiminum smávegis til baka með því að draga saman ágrip af hlaupasögu minni ef það gæti orðið einhverjum til stuðn ings og hvatningar við að takast á við sjálf an sig . Menn geta nefnilega miklu meira en menn halda fljótt á litið . Við höfum oft rætt um það félagarnir að við erum náttúrulega í forréttindahópi . For réttindin eru í því fólgin að geta hlaupið langt og lengi . Forréttindin eru í því fólgin að geta hlaupið maraþon því sem næst þegar mann langar til . Maraþonhlaup virkaði óyfirstíganleg þraut hér áður . Því miður eru margir sem ekki eru í þessari stöðu ýmissa hluta vegna . Ég sá fyrir tilviljun í vetur sem leið viðtal í ríkissjónvarpinu við Eddu Heiðrúnu Backman leikkonu . Í viðtalinu var meðal annars rætt við hana um starf hennar fyrir endur hæfingardeildina á Grensási . Edda hefur notið þjónustu Grensáss í ríkum mæli eftir að heilsu hennar fór að hraka fyrir nokkrum árum . Nú er hún bundin við hjólastól en málar til dæmis með munninum . Hún hefur lagt mikla orku í að berjast fyrir uppbyggingu og endurbótum á Grensásdeildinni sem hefur á margan hátt orðið útundan í uppgangi og framkvæmdum liðinna ára . Hún kynnti í þessu viðtali mikla fjársöfnun sem fyrirhugað var að hleypa af stokkunum í september . Ég fór í framhaldi af þessu að hugsa um hvort maður gæti á einhvern hátt lagt þessu mikla verkefni lið og endurgoldið þannig á einhvern hátt það sem manni er gefið með að geta hlaupið langt og lengi . Ég lét bíða með að hrinda þessum hugsunum í framkvæmd þar til ég hafði lokið 48 klst hlaupi á Borgundarhólmi í lok maí . Ég vildi sjá til hvernig ég væri á mig kominn eftir það hlaup en svo lengi hafði ég aldrei hlaupið áður . Hlaupið gekk mjög vel . Ég sigraði í hlaupinu og varð þannig fyrstur Íslendinga til að sigra í alþjóðlegu ofurhlaupi . Ég var vel á mig kominn og fljótur að jafna mig . Það var því um miðjan júní að ég herti upp hugann og hringdi í Eddu . Ég sagði Gunnlaugur Júlíusson og Hallgrímur Sveinsson, útgefandi, afhenda Eddu Heiðrúnu Backman leikkonu fyrsta eintakið af bók Gunnlaugs, Að sigra heiminn, en hluti af söluandvirði hvers eintaks rennur til endur hæf ing ar­ deildarinnar á Grensási í Reykjavík .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.