Þjóðmál - 01.12.2009, Blaðsíða 75
Þjóðmál vetur 2009 73
stjórn arríkjanna sumarið 1956 . Höfðu fyrri
boðsgestir Kristins flestir lokið lofsorði á þetta
höfuðríki sósíalismans . En Steinn snerist önd
verður við og deildi í blaðaviðtölum hart á
stjórnarfarið þar eystra: „Ég held, að það sé
eins konar ofbeldi, ruddalegt, andlaust og
ómannúðlegt . Og okkur svokölluðum Vestur
landamönnum myndi sennilega finnast það
óbærilegt .“5 Þjóðviljinn brást illa við . Magnús
Kjartansson skrifaði leiðara undir heitinu „Er
loksins til þurrðar gengið?“ Þar rifjaði hann
upp vísuorð Steins:6
Er stríðinu lokið? Er loksins til þurrðar gengið
það litla af ærlegri hugsun, sem fannst hjá mér?
Það hnussaði í Magnúsi: „Steinn Steinarr skáld
er orðinn spámaður í föðurlandi sínu .“ Hann
bætti við: „Hann forðaðist réttilega að kveða
upp nokkra rökstudda, sjálfstæða eða persónu
lega dóma, sagði aðeins það, sem Stefán
Pjetursson hefur alltaf sagt, og kvaðst hafa
séð eintómt myrkur um miðjan dag .“7 Stefán
Pjetursson var ritstjóri Alþýðublaðsins 1940–
1952 . Hann hafði naumlega sloppið við það í
Rússlandi 1933–1934 að vera sendur í þrælk
unar búðir fyrir frávik frá rétttrúnaði og barðist
eftir það hart gegn kommúnisma .8 Arthur
Koestler samdi skáldsöguna Myrkur um miðjan
dag til að skýra játningar sak born ing anna í
Moskvuréttarhöldunum alræmdu 1938 .9
Steinn Steinarr lýsti vonbrigðum sínum
með sósíalismann í tveimur kvæðum . Annað
þeirra bar heitið „Kreml“:
Sjálfur dauðinn,
sjálfur djöfullinn
hefur byggt þessa bergmálslausu múra .
Dimmir, kaldir og óræðir
umlykja þeir
eld hatursins,
upphaf lyginnar,
ímynd glæpsins .
Dimmir, kaldir og óræðir
eins og Graal
— Graal hins illa .
Graal var samkvæmt helgisögum kaleikur
Krists í síðustu kvöldmáltíðinni, en einnig
iðu lega notað sem tákn um verðmæti, sem
leitað er að .
Hitt kvæðið var „Don Quijote ávarpar vind
myllurnar“, og kallaðist það á við kvæðið frá
1937 . Nú var baráttan hvorki við vindmyllur
né auðvald, heldur hina algeru lygi:
Minn Herra gaf mér hatrið til lyginnar,
minn Herra kenndi mér að þekkja lygina,
hvaða dularbúningi sem hún býst .
Minn Herra léði mér fulltingi sannleikans,
hins hreina, djúpa, eilífa sannleika,
sem ég þó aðeins skynja til hálfs .
Með hálfum sannleika berst ég gegn
algerri lygi .
Ráðstjórnarskipulagið var „alger lygi“, en hið
vestræna aðeins „hálfur sannleikur“ . Annað
var vont, hitt langt frá því að vera gallalaust .10
En kvæði Steins var ekki verra fyrir það, að
síðasta vísuorðið var tekið nær orðrétt upp
eftir Arthur Koestler, sem komst svo að orði í
grein gegn sósíalisma 1943: „[W]e are fighting
Steinn Steinarr .