Þjóðmál - 01.12.2009, Blaðsíða 71
Þjóðmál vetur 2009 69
kaupa eignir Hafskips . Þeir, sem felldu málið,
gerðu svofellda grein fyrir atkvæði sínu: „Með
tilliti til þeirrar umræðu sem hefir farið fram
í þjóðfélaginu á undanförnum dögum um mál
Hafskips h.f. tel ég tímann óheppilegan til
þess að stofna þetta félag nú. Þess vegna segi ég
nei .“22 Er hægt að færa skýrari rök fyrir því, að
opinber umræða í fjölmiðlum og á Alþingi „á
undanförnum dögum um Hafskip“ hafi valdið
því, að ekki tókst að stofna félag hluthafa í
Hafskip með skipadeild SÍS og forða þannig
gjaldþrotinu? Í bók sinni Afdrif Hafskips í boði
hins opinbera, kemst Stefán Gunnar Sveinsson
að þessari afdráttarlausu niðurstöðu: „Ljóst er
að neikvæð fjölmiðlaumræða og líkleg aðkoma
keppinauta Hafskips höfðu afgerandi áhrif á
gjaldþrot félagsins.“23 Afdrifum Hafskips er
að þessu leyti vel lýst í bók Stefáns Gunnars .
Þar þurfti ekki atbeina hins opinbera, sbr .
heiti bókarinnar . Enginn þarf að efast um,
að Eimskipsmenn beittu sér af hörku í
málinu og að Útvegsbankinn átti ekki marga
stuðningsmenn í bankageiranum . Hitt verður
að flokkast undir tilraun til að búa til nýjar
nornir í Hafskipsmálinu að halda því fram,
að bankastjórar Útvegsbankans hafi „knúið“
Hafskip í þrot eins og haldið er fram með
mismunandi orðalagi í bókunum . Það er þó
kannski eftir öðru . Fyrst voru bankastjórarnir
ákærðir af tveimur saksóknurum fyrir ofrausn
í lánveitingum til Hafskips, ef svo má segja
á mannamáli . Þeir voru sýknaðir eftir löng
og afdrifarík málaferli með dómi Sakadóms
Reykjavíkur á þeirri forsendu, að þeir hafi
verið björgunarmenn að verki . Sleggjudóm
um og óhróðri í garð manna í Hafskipsmál
inu hefur oft verið líkt við nornaveiðar . Þessar
nýju nornaveiðar bæta engu sannleikskorni
í viðskiptasögu þjóðarinnar handa komandi
kynslóðum á Íslandi . Títtnefndar bækur eru
því miður ekki góður vitnisburður um „æðsta
takmark sagnfræðinnar að leita sannleikans“ .
22 Hafskip í skotlínu, bls . 45 . Vitnað í stjórnarfund SÍS 23 .
nóv . 1985 .
23 Afdrif Hafskips í boði hins opinbera, bls . 195 .
Jónas Kristjánsson
kominn út í kuldann hjá DV
Smáfuglarnir taka eftir því að DV hefur ekki vitnað í Jónas Kristjánsson, fyrrverandi
rit stjóra, síðustu daga . Jónas heldur úti blogg
síðu og DV hefur haft það sem reglu að vitna
til skrifanna . Ástæðan: Jónas hefur farið ham
förum vegna frétta um hugsanlegar af skriftir á
skuldum eigenda Haga, en þeirra á með al er
Hreinn Loftsson, skráður eigandi DV.
Þegar Stöð 2 greindi frá því að hugsanlegt
væri að tugir milljarðar yrðu afskrifaðir vegna
móð urfélags Haga og það síðan réttlætt með
því að erlendir aðilar bæru skaðann skrifaði
Jónas:
„Skítalykt er af frétt Stöðvar 2 um fimmtíu
milljarða afskrift nýja Kaupþings á skuld Haga,
sem á Hagkaup og Bónus . . . Líklegast er, að
mikill hluti þessara fimmtíu milljarða lendi á
skattgreiðendum .“
Daginn eftir skrifaði ritstjórinn fyrrverandi:
„Við stóðum í þeirri meiningu, að ofur
mennin, sem keyrðu eignarhaldsfélög í
milljarða gjaldþrot, mundu missa þau . Ríkis
stjórnin talaði á þann veg í vor .“
Og 3 . október er Jónas enn að gagnrýna,
en hann telur að verið sé að endurreisa „út
rásarvíkingana:
„Gefa fíflunum eftir milljarðaskuldir og af
henda þeim fyrirtækin á nýjan leik . Mönn
um, sem hafa sannað vangetu sína í rekstri
á stórkarlalegan hátt . Auðvitað ætti sumt af
þessum fyrirtækjum að vera rekstrarhæft hjá
nýjum eigendum og stjórnendum . En að
endurskapa fortíðina, hverjum dettur slíkt í
hug?“
Reynir Traustason, ritstjóri DV, sem hefur
verið óþreytandi við að halda nafni Jónasar
Kristjánssonar á lofti, er hættur að vitna til
hans skrifa .
Smáfuglarnir spyrja af hverju?
Fuglahvísl á amx .is, 3 . nóvember 2009 .