Þjóðmál - 01.12.2009, Blaðsíða 73
Þjóðmál vetur 2009 71
stjórnar . Þar kom fram tillaga þess efnis, að
hækka hátekjuskatt og nýta þann pening til
at vinnu uppbyggingar . Vinstri menn hafa
sjald an skilið, að það er gjaldeyrisöflun sem
skapar tekjur, ekki tilfærsla á fé hægri vinstri .
Davíð tókst það, sem engum hafði tekist áður,
að lækka skatta og efla tekjur ríkisins svo um
munaði .
Hann þótti vissulega óvæginn við ýmsa
pólitíska andstæðinga .
En þeir áttu það bara
skilið . Hann benti á það
fljótlega á sínu fyrsta
kjörtímabili, að alþingi
líktist gagnfræða skóla .
Sumir brugðust hart við,
en ég vil bæta um betur
og segja að þingið hafi
stundum líkst leikskóla .
Það segi ég ekki til að
lítilsvirða leikskóla, en
bendi á það sem Páll
postuli sagði forðum:
„Þegar ég var barn,
hagaði ég mér eins og barn, ályktaði eins og
barn, en þegar ég varð fulltíða maður, lagði
ég niður barna skapinn .“
Öll höfum við verið börn . Í leikskóla segja
börn stundum að þau hafi verið „rotuð“ .
Það þýðir að einhver hafi slegið þau í höf
uðið, frekar fast, en ekki nóg til að rota .
Kannast einhver við svona líkingar á þingi?
„Ríkisstjórnin framdi stjórnarskrárbrot /
mann rétt ind abrot“ . Það þýðir á mannamáli,
að einhver þjóðfélagshópur eða einstaklingar
séu ósáttir við aðgerðir ríkisstjórnarinnar, en
ekki að á ferðinni séu fyrrgreind brot .
Bönkunum voru sköpuð góð skilyrði til að vaxa og dafna . Bindiskylda var
afnum in til að íslensku bankarnir stæðu jafn
fætis keppinautunum í öðrum löndum . Eftir
hrunið skömmuðust margir yfir bindiskyldu
afnáminu . Hvað skyldi þjóðin hafa sagt ef
Davíð hefði aukið bindiskyldu? Fjölmiðlar
auðhringjanna hefðu farið offari, og sagt að
það væri verið að eyðileggja sam keppnis hæfni
bankanna . Og þjóðin hefði trúað því .
Misvitrir menn hafa spurt, hvers vegna
Davíð hafi ekki opinberað hættuna á hruni
bankanna . Þá hefði orðið bankaáhlaup og
þeir hrunið strax . Hverjum hefði verið kennt
um það? Davíð Oddssyni .
Það er annars merkilegt með Davíð, ef
hann segir eitthvað,
þá er það rangtúlkað .
Í skemmtilegri ræðu á
landsfundi Sjálfstæðis
flokksins kom hann
með smá myndlíkingu .
Hann sagði að Pílatus
hefði krossfest góð
menn ið Jesú og tvo
þrjóta honum við hlið .
Jóhanna Sigurðardóttir
ákvað að krossfesta
þrjótinn Davíð og tvo
sómamenn honum við
hlið . Samkvæmt skiln
ingi vinstri mannanna er Jesú þrjóturinn! Það
er ekki heil brú í þessum hugsunargangi .
L ausnarorðið er frelsi,“ sagði Milton Friedmann . Það eru orð að sönnu, en það má
segja, að samfélagið hafi ekki höndlað frelsið .
Er það þá Davíð að kenna, sem vildi okkur
ekkert annað en gott samfélag, byggt á frelsi?
Það er svo fáránlegt að hugsa til þess, að
það er alveg sama hvað karlanginn gerir, allt
er túlkað á versta veg . Ef hann hefði gert allt
það sem fólk segir að hann hefði átt að gera,
hvað hefði gerst?
Segjum að hann hefði hægt á vexti bankanna
með lagasetningum og aukinni bindiskyldu,
sett lög sem bönnuðu samþjöppun á mat
vörumarkaði og beitt ýmsum lagaákvæðum
sem takmörkuðu vöxt bankanna á erlendum
markaði . Ætli Baugsmiðlarnir hefðu ekki
sagt, að hann væri í stríði við bankana og
Baugsveldið? Fólk hefði örugglega trúað því .
Davíð Oddsson forsætisráðherra ávarpar
fund þjóð a leiðtoga ríkja Atlantshafs banda
lagsins . Bill Clinton, þáverandi Bandaríkja
forseti, hlýðir á .