Þjóðmál - 01.12.2009, Page 41

Þjóðmál - 01.12.2009, Page 41
 Þjóðmál vetur 2009 39 „Jöklar á Íslandi á dögum Grikkja og Rómverja fyrir um 2 .500 árum í samanburði við núverandi jökla . Þeir voru þá miklu minni en á landnámsöld, en höfðu þó aukist mikið frá bóreölskum tíma þegar landið var jöklalaust að heita má .“ (Grétar Guðbergsson og Þorleifur Einarsson 1996) þúsundir) af 4 .500 milljón ára sögu jarðar­ innar . Þau standa í fáeinar árþúsundir á um hundrað þúsund ára fresti og hafa sum augljóslega verið miklu hlýrri en það sem nú ríkir . Um ástæður hlýskeiðanna er ekkert vitað með vissu, en langtímasveiflur í geislun sólar eru alls ekki ólíkleg orsök . Breytingar á sporbaug jarðar geta varla skýrt svo skyndilegar og snöggar sveiflur . Fundist hafa merki um nokkrar aðrar stórar ísaldir á fyrri tímaskeiðum jarðsögunnar, en þær hafa verið tiltölulega stuttar sé miðað við ármilljarða heildarlengd hennar . Hitastig á jörðinni fer sem fyrr sagði hægt kólnandi og þornandi . Þessi kólnun er ekki jöfn, en þótt hita­ og rakakúrfan sé hlykkjótt, liggur hún afdráttarlaust niður á við, mönnunum og gjörvöllu lífríkinu til ómæl anlegs tjóns . Stóru niðursveiflurnar í hita kúrf unni má kalla „litlar ísaldir“ og hafa verið nokkrar . Þess á milli hlýnar aftur um skeið, en þrátt fyrir allar sveifur og sveiflur innan í sveiflum kólnar og þornar loftslagið hægt og sígandi . Allir kannast við síðustu „litlu ísöld“ sem náði (gróflega) yfir tímabilið frá 1300–1900, en önnur slík, sem þó var miklu hlýrri, hefur lengi verið kunn . Hún hófst eitthvað upp úr 500 f . Kr . og náði inn á fyrstu aldir okkar tímatals . Þá lagðist byggð af í Norður­Skandinavíu og gresjur Mið­Asíu skræln uðu . Þetta hvort tveggja átti mikinn þátt í að hrinda af stað þjóðflutningunum miklu . Fyrstu árþúsundin eftir flóðið mikla, sem markar upphaf núverandi hlýskeiðs var

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.