Þjóðmál - 01.12.2009, Síða 59

Þjóðmál - 01.12.2009, Síða 59
 Þjóðmál vetur 2009 57 Ástralir hafa síðast liðinn áratug mátt þola verstu þurrka í sögu hvíta mannsins þar . Sums staðar hefur úrkoman helmingazt . Bændur hafa brugðizt við nýjum „markaðsaðstæðum“ með því að rækta tegundir, sem þurfa minna af vatni . Þannig hefur tekizt að halda verðmæti uppskerunnar stöðugu . Vatnsnýtnin hefur tvö faldazt . Kvótakerfi Ástralanna hefur slopp­ ið við gagnrýni bænda, af því að það tryggir þeim rétt á vatni og sér þeim fyrir megninu af því endurgjaldslaust . Íslenzka kvótakerfið er dæmi um sams konar kerfi, sem komið var á laggirnar til að bregðast við hruni fiskistofna og hefur að sama skapi virkað með ágætum . Framseljanlegt kvótakerfi virkar líka í þró­ un ar löndum, t .d . Indlandi og Kína, þar sem hvorki eru fyrir hendi mælar til að skrá vatns­ notkun né lagaumhverfi til að framfylgja rétt­ indum og skyldum . Bændur selja þar hluta af tíma sínum við vatnsbrunnana . Eins og Íslendingar vita, er framseljanlegt kvóta kerfi ekki gallalaust . Í fyrsta lagi við­ held ur það nýtingarmynztri, sem oft er óhag­ kvæmt . Bændur geta svindlað, eins og Ástralir hafa reynt . Framseljanlegt kvótakerfi er þó góð byrjun og miklu betra fyrirkomulag en til vilj un ar kenndur samdráttur vatnsnotkun ar (eða veiða) og yfirvofandi afkomuhrun . Næsta skref yfirvalda gæti þá orðið tilskipun um alls­ herjar grænmetisát í stað kjöt­ eða fiskneyzlu . Eitt er víst: ekki hefur frétzt af því, að áströlsk yfirvöld boði innköllun vatnsrétt­ inda, eins og andfætlingar þeirra uppi á Ís­ landi hafa í hótunum um við eigendur afnota­ rétt ar á aflahlutdeild Íslandsmiða . Vatnsafl Íslands Því er spáð, að efnahagskerfi heimsins næstu tvo áratugina muni einkennast af því, að endurnýjanlegir og kolefnislausir orkugjafar muni leysa hið kolefnisríka jarðefnaeldsneyti af hólmi . Efnahagslegi hvatinn að þessu er yfirlýsing IPCC (Intergovernmental Panel on Climate Change) um, að leggja þurfi kol­ tvíildisskatt á eldsneytisbruna, er nemi USD 20–50 á hvert tonn koltvíildis til að vega upp á móti umhverfiskostnaði mengunar af völd­ um koltvíildis . Þetta mundi t .d . jafngilda u .þ .b . 30 % hækkun á framleiðslukostnaði áls í álveri, er keypti raforku frá kolakyntu orku veri, og mundi þannig gera slíkt álver ósam keppni shæft við álver, er nyti raforku frá vatnsorkuveri . Evrópusambandið er að innleiða kvóta kerfi á losun koltvíildis, þar sem verð lagn ing los un­ ar er á svipuðum nótum og tillaga IPCC . Þessi staða eykur verðmæti sjálfbærra orku­ linda, eins og vatnsafls Íslands . Orkumarkaður heimsins er risavaxinn . Um þessar mundir er meðalaflþörf mannkyns um 15 TW (eitt terawatt er 1000 GW, gígawatt, en meðalálag á Íslandi er um 1,8 GW) . Ís­ lenzki raforkumarkaðurinn er þannig 0,012% af heimsmarkaðinum . Söluandvirði þessarar raforku er talið nema USD 6,0 trilljónum eða um 1/10 af vergum framleiðsluverðmætum heimsins . Gríðarlega mikilli aukningu raforkuvinnslu er spáð næstu fjóra áratugina, þannig að árið 2050 nemi aflþörfin 30 TW, þ .e . að jafnaði 2,5 % árleg aukning . Vatnsauðlind Íslands felur í sér áætlaða aflgetu upp á 35 GW, en aðeins 22 % eru talin tæknilega nýtanleg . Ef t .d . er reiknað með, að 15% sé hagkvæmt að virkja, fást 5,3 GW, sem gætu gefið USD 2,1 milljarð á ári í sölutekjur á ári á núvirði eða um 20% af núverandi VLF . Í ljósi þess, að raunverð orkuverðs mun vafalaust hækka frá núverandi verðlagi vegna þverrandi orkulinda, koltvíildisskatts og aukinnar eftirspurnar, er ljóst, að vatns­ auðlindin, nýtt til raforkuvinnslu á Íslandi, er og verður gríðarlega þjóðhagslega mikilvæg . Þegar tekið er tillit til þess, hversu mikið ferskt vatn er að finna hérlendis á hvern íbúa, og hversu nýtingarmöguleikarnir eru marg­ víslegir til landbúnaðar, iðnaðar og jafnvel beins útflutnings með tankskipum, má segja, að vatnið sé „sjálfbær olía“ okkar Íslendinga .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.