Þjóðmál - 01.12.2009, Page 79

Þjóðmál - 01.12.2009, Page 79
 Þjóðmál vetur 2009 77 tíminn liðið . Og hann hefur bara leitt í ljós, að þetta var allt eintómt helvítis kjaftæði . Þessi aðferð sósíalismans, hún hefur bara gjörsamlega klikkað,“ sagði hann . „Og þess vegna get ég alls ekki sagt, að ég sé sósíalisti . Ég sé ekki, að þessi stefna hafi leitt til neins góðs .“ Þórarinn var spurður um áhyggjur sós íal ista af bandarískum áhrifum á íslenska menningu . „En hins vegar þegar þetta er skoðað eftirá, þá auðvitað börðust saman gegn bandarískum áhrifum menn, sem höfðu fyrst og fremst áhyggjur af Íslandi, og menn, sem voru líka með annað í pokahorninu, sem þeir vildu gera eða hefðu viljað gera, ef þeir hefðu getað það,“ svaraði hann .29 Þetta mislíkaði Árna Bergmann, sem lengi hafði ver ið ritstjóri Þjóðviljans, en það blað hætti að koma út um líkt leyti og Ráðstjórnarríkin liðuðust í sundur í árslok 1991 . Árni deildi á Þórarin í Tímariti Máls og menningar 1992 . „Sannleikurinn er vitanlega sá, að ef hinar ýmsu kynslóðir róttæklinga hér á landi hefðu ekkert haft fram að færa annað en sovéttrúna, opinskáa eða þá dulbúna, þá hefði litlum sögum af þeim farið .“ Taldi hann íslenska sósíalista hafa verið einlæga í þjóðernisstefnu sinni . Þeir hefðu líka haldið uppi nauðsynlegu andófi gegn auði og valdi .30 Þórarinn Eldjárn brá á það ráð að svara Árna með sonnettunni „Skipsfregn“, sem birtist í Tímariti Máls og menningar 1992: Á líkframleiðsluiðnaðarins öld varð iðnjöfrunum hált í flestum greinum . Þeir stærstu að lokum misstu mátt og völd en málstaðurinn var svo fínn hjá einum að enn þá heldur sjó með lík í lest hans leka fley með rá og siglu brotna . Menn þekkja dauninn, drottinn minn sú pest er draumar þrár og vonir taka að rotna . Ég sé þig bogra og beita kutanum við balsameringskúnstir uppi á dekki sem kunna að duga þínum þeffærum en þessu skáldi hérna barasta ekki . Gegnum talstöð á ég við þig orð enda ekki lengur munstraður um borð . Þetta er bersýnilega tilbrigði við sama stef og kvæðið „Kreml“ eftir Hannes Pétursson frá 1956 . Þar hafði Hannes líkt sósíalismanum við skip á leið til sæluríkisins, sem hefði villst: Og þeir, sem leita að álfu hunangsins, eigra um ónýtan farkost, vaxnir langri skör, rjála við hníf sinn, horfa lymskir á grannann, því hungrið er stöðugt og sárt: Þeir éta hver annan . Þetta kvæði hafði vakið mikla gremju í her­ búðum sósíalista, og hafði Þórbergur Þórð ar­ son ort gegn því „Marsinn til Kreml“, sem kom út sérprentaður . Sá munur var þó á, að Hannes hafði aldrei séð neitt púður í sósíal ismanum og þurfti því ekki að kveða sig frá honum .31 Kvæði Þórarins Eldjárn olli uppnámi . Mörður Árnason birti skömmu síðar greinina „Hvorki rök né rím . Ritdómur um sonnettu“ í Tímariti Máls og menningar . Þar kvartaði hann undan því, að erfitt væri að rökræða við skáldverk . Árni Bergmann ætti ekki heldur heima í áhöfn þess skips, sem kvæði Þórarins væri um . Og hvað um Þórarin sjálfan? „Sá sem afmunstraðist — er hann núna kominn á land og farinn að vinna á lífsins lager? Eða er hann bara búinn að fá annað skip?“ Þórarinn Eldjárn .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.