Þjóðmál - 01.12.2009, Qupperneq 86

Þjóðmál - 01.12.2009, Qupperneq 86
84 Þjóðmál vetur 2009 neinni vissu, en í nýútkominni ævisögu Trotskij telur breski sagnfræðingurinn Robert Service, sem skrifað hefur ævisögur þeirra allra, Leníns, Stalíns og Trotskijs, að það hefði litlu breytt fyrir fólkið í Sovétríkjunum á millistríðsárunum þótt æðsti ráðamaðurinn hefði verið annar . Blóðbaðið hefði ekki orðið minna þótt vitaskuld megi ætla að a .m .k . sum fórnarlömbin hefðu orðið önnur . Að hans mati var það stjórnkerfið, sem olli mestu, ekki einstaklingarnir . Kaflarnir um önnur lönd og álfur eru ekki síður fróðlegir – og hrikalegir – aflestrar en sá um Sovét­ ríkin . Saga kommúnismans í Asíu, Afríku og Rómönsku Ameríku er ekki síður blóði drifin en í Evrópu, og lýsingarnar á Kína og framferði Maós formanns og lærisveina hans og skjólstæðinga í öðrum heimsálfum eru skelfilegar . Sjálfum þótti mér þó forvitnilegast að lesa um þróun mála í Austur­ og Mið­Evrópu á árunum eftir síðari heimsstyrjöld, einkum í Ungverjalandi, Póllandi og Tékkóslóvakíu . Þessi lönd eru okkur nær en ríki í fjarlægum heimsálfum og fréttaflutningur frá þeim var jafnan rækilegri og oft nákvæmari en frá t .d . Kína og Rómönsku Ameríku, að ekki sé minnst á Afríkuríki, þar sem maður hafði oft á tilfinningunni að stjórnmálamenn og herforingjar í valdabaráttu nefndu hreyfingar sínar eftir evrópskum hugmyndakerfum til þess að reyna að tryggja sér fjárhagslegan og hernaðarlegan stuðning . Virtust þá nafngiftirnar tíðum ráðast af því sem best hentaði stríðsherrunum hverju sinni . Þrætubókarmenn deila tíðum um það, hvorir hafi verið verri eða stórtækari í manndrápum, kommúnistar eða nasistar . Þessi samanburður er út í hött og líku máli gegnir um þau rök, sem oft hafa verið færð fram, að kommúnistar hafi verið miklu lengur og víðar við völd en nasistar . Af þeim sökum hafi verið nánast eðlilegt að þeir yrðu fleirum að fjörtjóni, en nasistar hafi í raun „afrekað“ meiru á þessu sviði á þeim tiltölulega skamma tíma, sem þeir stjórnuðu Þýskalandi og þeim löndum, sem þeir lögðu undir sig . Þetta er vitaskuld tómt rugl og svona röksemdafærsla felur í sér viðurkenningu og jafnvel réttlætingu á ógnarstjórn . Manndráp, pyntingar, nauðungarvinna, og önnur ógnar­ verk, sem kommúnistar og nasistar beittu, geta aldrei verið réttlætanleg . Vilji menn benda á dæmi til samanburðar við aðra hvora eða báðar ógnarstjórnirnar væri nær að líta til friðsamra lýðræðisríkja á borð við Norðurlönd eða Kanada . Þar hafa engin ógnarverk verið unnin á vegum stjórnvalda, a .m .k . ekki svo mér sé kunnugt, og hefur lýðræðið þó verið ærið lengi við lýði í þessum löndum . En hversu mörg voru fórnar­ lömb komm únista og komm ún­ istastjórna í heiminum á 20 . öld? Í inngangskafla bókarinnar kemur fram (bls . 12), að alls hafi hartnær 100 milljónir manna verið drepnar í löndum kommúnista víða um heim á tímabilinu frá 1917 og fram um eða yfir 1990 . Sú tala er að vísu engan veginn nákvæm og líklega nær lágmarki en hámarki . Ótrúlega mikill hluti þessa fólks var félagar í kommúnistaflokkum og var líflátið eða lést vegna nauðungaraðgerða eftir að flokkur þess komst til valda . Líkast til hefur ekki verið hættulegra að ganga í aðra stjórnmálaflokka, sama hvar í heiminum það var . Þetta geta þó trauðla talist nýjar upplýsingar, a .m .k . ekki fyrir þá sem hafa fylgst með því, sem rætt hefur verið og ritað um sögu 20 . aldar á undanförnum áratugum . Engu að síður er talan 100 milljónir ógnarhá og samsvarar því að nærfellt þriðjungur allra Bandaríkjamanna hafi fallið fyrir böðulshendi . Í því viðfangi er þó rétt að taka fram, að hér eru ekki aðeins taldir þeir, sem voru beinlínis teknir af lífi, heldur einnig fólk sem lést í fangelsum, vinnubúðum og af völdum annarra nauðungaraðgerða í löndum, sem lutu stjórn kommúnistaflokka . Svartbók kommúnismans er löngu orðið klass­ ískt verk í evrópskri söguritun síðustu áratuga . Af þeim sökum er mikill fengur að útgáfu bókarinnar á íslensku . Hins ber þó að gæta, að umfjöllun höfundanna, svo góð og gagnleg sem hún er, er fráleitt tæmandi og reyndar að sumu leyti úrelt . Tólf ár eru liðin frá því bókin kom fyrst út . Á þeim tíma hefur margt gerst í rannsóknum á sögu kommúnistaríkjanna, eink um í Austur­Evrópu og Kákasuslöndum . Þær rannsóknir hafa varpað nýju ljósi á margt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.