Þjóðmál - 01.12.2009, Side 93

Þjóðmál - 01.12.2009, Side 93
 Þjóðmál vetur 2009 91 Taldi hjúkrunarfræðingur honum fyrir bestu að sitja við rúm föður síns í dagsbirtu . Þeir hitt­ ust ekki oftar í þessu lífi . Séra Hjálmar lýsir preststarfinu, en hann hefur gegnt því síðan 1976, með nokkurra ára hléi, í Bólstaðarhlíðarprestakalli í Húnavatnssýslu, á Sauðárkróki og nú í Dómkirkjunni í Reykjavík . Alls staðar eru skyldur prestsins hinar sömu, þótt starfsvettvangurinn sé mismunandi . Séra Hjálmar segir: Það er ekki lítill trúnaður sem prestum er falinn . Við erum kvaddir til á stundum gleði og hamingju . Þegar barn er skírt í fjölskyldu, þegar fermingarbarn segir já í kirkjunni sinni . Við erum fulltrúar Krists og kirkju hans við að blessa hjónabönd, þegar brúðhjón segja já hvort við annað . Og svo í kirkjum og inni á heimilum þegar andlát eiga sér stað . Ég held að enginn geti sinnt starfi eins og þessu án þess að vera einlægur og snortinn af aðstæðunum, bæði gleðinni og sorginni . Þegar séra Hjálmar ræðir stöðu kirkjunnar, er ekki laust við nokkurn varnartón . Að þjóðin meti ekki starf og stöðu kirkjunnar að verðleikum . Undir þetta má taka, þegar hugað er að ómaklegum athugasemdum um kristni og kirkju frá þeim, sam hallast að öðrum sið . Kirkjan heldur sig frekar til hlés í þeirri orðræðu . Í bók séra Hjálmars er hins vegar enn að finna skýr rök fyrir því, að ástæðulaust er fyrir presta að biðja nokkurn afsökunar á því, sem þeir hafa tekið að sér að miðla til þjóðarinnar . Séra Hjálmar ákvað að reyna fyrir sér á vettvangi stjórnmálamanna, enda hafði hann tekið að sér ýmis veraldleg störf fyrir Skagfirðinga . Hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins höfðaði til hans . Hjálmari vegnaði vel í prófkjöri, náði fyrsta sæti á lista og settist á þing 1995, eftir að hafa kynnst þingstörfum sem varaþingmaður . Lýsing Hjálmars á þingstörfum skýrir, hve lærdómsríkt er að taka þátt í störfum þingnefnda . Sérstaklega í fjárlaganefnd, en þar eiga þingmenn kost á að fá bestu sýn yfir innviði stjórnarráðsins og kynnast áhugamálum þeirra, sem óska eftir styrk úr ríkissjóði . Þá er alþjóðaþátturinn í þingmannsstarfinu ekki síður mikilvægur og honum kynntist Hjálmar einnig . Hjálmari líkaði þingstarfið og náði góðum árangri í kosningum . Honum þótti hins vegar miður, að stundir hans með fjölskyldunni urðu færri en hann óskaði auk almennra tengsla við fólk . Kirkjan og prestþjónustan kallaði á hann og 1 . febrúar 2001 varð hann dómkirkjuprestur í Reykjavík . Undir lok bókarinnar ræðir séra Hjálmar stöðu kirkjunnar í þjóðfélaginu og hugar að kristnum gildum og stjórnmálum í ljósi hrunsins . Hann segir meðal annars: „Ágirnd og taumleysi, græðgi og grimmd sé hægt að virkja og setja í þann búning að samfélag manna njóti góðs af . Þetta fæ ég ekki skilið . Frjálshyggja er eitt, þessi tegund fríhyggju er annað . Sú fríhyggja sem hér var farin að skjóta rótum átti helst skylt við anarkisma, stjórnleysi . Ég get ekki ímyndað mér að hún eigi hljómgrunn meðal þjóðarinnar . Ekki frekar en alræðið .“ Að sjálfsögðu er ekki unnt að kenna siðbrotið að baki bankahruninu hér eða annars staðar við stjórnmálastefnu . Alan Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, orðaði skoðun sína á því, sem gerðist, á þann veg, að hann hefði í barnaskap sínum haldið, að fjármálamenn á Wall Street mundu ekki rífa sjálfa sig á hol, þótt þeir hefðu frelsi til þess . Bók séra Hjálmars Jónssonar er tímabær áminning um, að hófsemi, kærleikur og gleði eru heillavænlegri en taumleysi, græðgi og grimmd . Hún á því erindi til íslensku þjóðarinnar í leit hennar að farsælli leið til að sigrast á viðfangsefnum sínum í leik og starfi . Að skilja Einar Ben . Einar Benediktsson: Að skilja heiminn. Æviminning ar sendiherra, Bókafélagið Ugla, Reykja vík 2009, 290 bls . Eftir Þorstein Pálsson Þeir sem til þekkja vita að Einar Benedikts­son hefur verið atorkusamur í meira lagi í hverju því verki sem hann hefur tekist á hendur .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.