Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 31

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 31
I þessu efni tók Þórhallur því hreina „prinsípsafstöðu“ sem horfði til fram- tíðar. Þórhallur leit samt svo á að kirkjubyggingar og það sem þeim tilheyrði hlyti að falla undir evangelísk-lúthersku kirkjuna eina.46 Um þetta efni ritaði hann 1911: Kirkjueignirnar eru gefnar í trúarþörf landsmanna, erfðafé gefið í því skyni að halda uppi kristinni guðsþjónustu og trúarbragðakenslu. Til þessa verður féð að ganga áfram, enda góður staður fyrir það, þjóðfélaginu til sannra heilla En kirkjan á að sleppa fasteigninni við ríkið. Landið leysir jarðeignir, mötur, kvaðir, ítök o.s.frv. til sín fyrir hæfilegt verð. Af því myndast höfuð- stóll er ríkið geymir og ávaxtar og svarar vöxtum af árlega til kristinna trú- félaga, að tiltölu réttri, þeim er fullnægja settum skilyrðum. Prestsetrin sem nú eru ætti ekki að undanskilja við afhendingu fasteignanna. Búandi prestar héldu auðvitað leiguréttinum fyrir sjálfa sig að landslögum.47 Lagði Þórhallur áherslu á að ofangreind úthlutun væri ekki fjárveiting eða styrkur af ríkisins hálfu heldur niðurjöfnun á grundvelli eigna sem gefnar hefðu verið til eflingar andlegs lífs í landinu. Þegar úrskurðað væri hvaða kristin trúfélög ættu að öðlast hlutdeild í úthlutuninni taldi Þórhallur eins og áður að ríkinu bæri að skera úr um „hvað undir það lýsingarorð [þ.e. kristinn] kæmist“ og væri því treystandi til „frjálslegrar skýringar, hátt 46 Kirkjueignirnar 1896: 218. 47 Skilnaðarkjörin 1911: 274. Þórhallur byggði hér í stórum dráttum á sömu hugmyndum og fram komu í áliti nefndar í neðri deild Alþingis 1909. Hún áleit eignarhald lúthersku þjóðkirkjunnar á kirkjujörðum og kirkjum aðeins verða réttlætt siðferðilega ef litið væri svo á að þær hefðu verið gefnar til „viðhalds trúarbrögðum í landinu, hver sem þau annars kunna að vera á hverjum tíma.“ Því virtist henni eðlilegt að ríkið væri hinn rétti umráðandi allra fjármuna þjóðkirkjunnar og bæri því að taka allar þessar eignir undir sig, láta meta þær og verja arði af þeim árlega til að styrkja öll trúfélög í landinu í hlutfalli við félagatölu þeirra. Þá taldi nefndin að selja ætti kirkjubyggingarnar en veita stærsta staðbundna safnaðarfélaginu (fríkirkjusöfnuðinum) er í þær byði eða þeim söfnuði er hæst byði forkaupsrétt. Alþingistíðindi 1909(A): 1101. Lúthersk játning sem slík skyldi með öðrum orðum ekki leiða til forréttinda. 1913 fjallaði Þórhallur Bjarnarson enn um svipuð mál í nafnlausri grein í Nýjn kirkjublaSi. Þar kom fram að ummæli í kirkjurétti Einars Arnórssonar (1912: 178) ýttu undir þann skilning að landssjóður ætti lénskirkjur og héldi þeim eignarrétti þótt söfnuðir lögum samkvæmt tækju við umráðum þeirra. Sjóðurinn mundi því eignast kirkjurnar með áhöldum og sjóðum legðist þjóðkirkjan niður. Eins bæri ekki að líta svo á að utanþjóðkirkjusöfnuður eignaðist kirkjubyggingu þótt allir í viðkomandi þjóðkirkjusöfnuði gengju honum á hönd. Biskup áleit „það alveg staðlausa hræðslu, að ríkið við skilnað legði undir sig kirkjuhúsin, sér til fjárplógs, enda tel ég ríkið ekki hafa eignar-ráð kirkjufjár né kirkjuhúsa, heldur fjáhald sem fyrir ómyndugan". Hvort einstakir söfnuðir eða kirkjufélagið í heild fengi eignaryfirráðin við skilnað ríkis og kirkju væri síðan önnur spurning. Stjórnarráðið fjallaði síðan um málið og leit svo á að „ekki mundi koma til mála að landssjóður gjöri tilkall til kirkjuhússins með gripum og sjóði, hvernig sem litið er á eignarráð ríkisins að kirkjueignum að öðru leyti“. Umráðin yfir kirkjunum 1913: 137-138. 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.