Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Side 42

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Side 42
stefnunnar“. Taldi hann að aðskilnaður ríkis og kirkju ætti því að vera þeim kappsmál er henni gengjust á hönd. Þeir væru þá lausir við „öll afskipti ríkisins af trúmálaskoðunum þeirra og ... það ámæli að vilja lifa á kostnað þeirra, sem ekki geta felt sig við kenningar þeirra“ og átti þar við söfnuði er aðhylltust eldri guðfræðihefð.94 Var niðurstaða Sigurðar þessi: Eins og nú er komið, er skilnaðurinn æskilegasta leiðin út úr því öngþveiti, sem kirkjumál vor eru komin í. Löggjafarvaldið hefur undanfarin ár verið að leggja nýjar bætur á gamalt fat með ýmsum lögum, sem alls ekki eiga við þjóðkirkjufyrirkomulagið og standa sem niðurrifsfleygar í þjóðkirkjubygg- ingunni, svo koma þessar nýju trúmálastefnur, sem sigla undir fölsku flaggi þjóðkirkjunnar, en heimta af henni kaup og kost. Þjóðkirkjan íslenska glatar óðum virðingu sinni með allri þeirri lausung, ljettúð, hálfvelgju og stefnuleysi, sem ár frá ári vex á öllum sviðum trúar- og kirkjumála vorra. Hún er að verða lifandi lík í höndum kirkjustjórnar og klerkdóms ríkisins. Vilja kirkjunnar menn heldur horfa á hana veslast upp í ríkisfjötrunum, en leysa þá í þeirri von, að lífsandinn af hæðum blási nýju lífi yfir dal hinna dauðu beina? Kristindómur þjóðar vorrar vinnur áreiðanlega miklu meira en hann tapar við sambandsslitin.95 Þórhallur Bjarnarson gerði mál Arboe Rasmussen sem og skrif Sigurðar í Vigur að umtalsefni í Nýju kirkjublaði. Kvað hann afleiðingar dómsins verða að í Danmörku yrði horfið frá löggjöf um eftirlit af hendi ráðherra og biskups með kenningu presta og sú skipan tekin upp að „hver einstakur söfnuður hafi þar á völd og ábyrgð, hverjar trúarskoðanir hann kýs eða þolir hjá presti sínum“.96 I grein sinni gekk Þórhallur út frá þeim skilningi 94 Sigurður Stefánsson 1916: 18. Sjá og Sigurður Stefánsson 1916: 10-12. Gísli Sveinsson (1914: 208-209) var á sama máli. Fyrir honum útilokaði þjóðkirkjuskipanin kenningarfrelsi innan þjóðkirkjunnar og krafðist meiri fastheldni við játningarrit kirkjunnar en frjálslynda guðfræðihefðin og spíritismi rúmuðu. Sjá og Sigurbjörn A. Gíslason 1912a og Sigurbjörn Á. Gíslason 1912b. 95 Sigurður Stefánsson 1916: 18-19. Torvelt er að segja við hvaða lög sem „ekki eiga við þjóðkirkjufyrirkomulagið“ Sigurður á. Þó má benda á stjórnarskrárbreytingarnar 1915. Sigurður hafði þegar 1893 lýst sig þeirrar skoðunar að heilladrýgst væri að losa fremur en herða „þau verzlegu bönd, sem nú liggja á kirkju vorri“. Vildi hann því viðhalda biskupsembættinu en tillögur höfðu komið fram um að það yrði lagt niður. Sigurður Stefánsson 1893: 55. 96 „Rúmgóða þjóðkirkjan“ 1916: 185 Kenningarfrelsi presta og í tengslum við það réttur safnaða til að losast við presta hafði verið til umræðu hér. Jón Helgason hafði m.a. talað fyrir kenningarfrelsi á prestastefnu 1909 og stefnan þá samþykkt samhljóða að tillögu Þórhalls biskups ályktun um rétt safnaða til að „fá prest leystan frá embætti" vegna „réttmætra ástæðna“ og eftir „ítrekaðar" sáttadlraunir. ÞI. Bps. 1994-BA/l. Prestastefnan á Þingvelli 1909: 166-167. Á prestastefnu á 40
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.