Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 54

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 54
hátt og til að mynda hinn forni Hammúrabí bálkur. I Mósebókum er að finna margs konar minni söfn af lögum hér og þar og jafnframt lagalegar túlkanir á slíku efni ásamt lagalegri túlkun á efni sem heyrir undir ýmsa aðra bókmenntaflokka. Því hefir verið haldið fram að íyrir babýlónsku herleiðinguna hafi hinir fornu Ísraelítar rekið þrenns konar skóla þar sem prestar réðu fyrir einum, spámenn fyrir öðrum og spekingar fyrir þeim þriðja (sbr. Jer 18.18). Staður spekingsins átti síðar eftir að einangrast við hirð konunga en spekingurinn verður mest áberandi af þessum þremur embættismönnum eftir babýlónsku herleiðinguna. Spekingurinn (hebr. sopher eða hakarri) er ekki viljalaus ritari eða áhrifalaus skrifari heldur lærður maður sem getur tekið að sér margs konar rannsóknir fyrir yfirboðara sinn.15 Lítið er vitað með vissu um hver fór með kennslu í trúarlegum efnum eða hafði leiðtogahlutverki að gegna í Júdeu og síðar á meðal Gyðinga í dreifingunni á árunum 587-458 f. Kr.16 Af ýmsum ritum Gamla testamentisins má ráða að fjölmörg trúarbrögð hafi lifað hlið við hlið fyrir fall Israels árið 722 f. Kr. og Júdeu árið 587 f. Kr. og lítið hefir sennilega breyst í þessum efnum allt til miðrar fimmtu aldar f. Kr. I Egyptalandi reistu Gyðingar musteri undir lok sjöttu aldar f. Kr. (sumir telja það eldra eða frá því fyrir babýlónsku herðleiðinguna) og þar hélt fórnarþjónusta áfram án tillitis til atburðanna í Júdeu en óljósara er hvort einnig var reist musteri í Babýlóníu á sama tíma, sjöttu öld f. Kr., og eftir fall musterisins í Jerúsalem.17 Samkvæmt Jeremía þá hélt fórnarþjónusta einmitt áfram eftir fall musterisins í Jerúsalem, á öðrum vettvangi, og af því má ætla að prestar hafi haldið hlutverki sínu áfram í einhverri mynd, segir Philip Sigal. Spámenn eins og Haggaí, Sakaría og Malakí eru jafnframt áberandi eftir fall musterisins og því verður jafnframt að ætla að þessi starfs- 15 Phillip Sigal, The Halakhah of Jesus of Nazareth according to The Gospel of Matthew 2007, s. 36-37. 16 I Testamenti Levíer fjallað um kennslu barna höfuðfbðurins sem hann sjálfur innir af hendi bæði í helgisiðum og lögmálinu en hér er augljóslega um heimilisguðrækni að ræða fremur en opinberan skóla, Michael E. Stone, „Ideal Figures and Social Context: Priest and Sage in the Early Second Temple Age“ 1987, s. 579; sjá um kennslu barna frekar Gunnlaugur A. Jónsson, „Þegar sonur þinn spyr þig - kennsla barna í 5. Mósebók" 2010, s. 60-72. 17 Sigal heldur því fram á grundvelli Esr 8.17 að musteri hafi verið reist í Babýióníu og jafnframt að fórnarþjónusta hafi haldið áfram í Jerúsalem (á grundvelli Jer 41.5) eftir fall musterisins senmma á sjöttu öld f. Kr. (Halakhah, s. 37). Koester deilir ekki um byggingu musteris í Elefantíne í Egyptalandi, frekar en Sigal, en hafnar því að museri hafi nokkurri sinni verið reist í Babýlóníu (History, Culture, and Religion ofthe Hellenistic Age, s. 212). 52
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.