Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 79

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 79
þær birtust í riti hans Kristindóminum (þ. Das Wesen des Christentums).' Þessum sjónarmiðum var haldið að almenningi með ýmsum hætti. Tvær heimsstyrjaldir leiddu ekki til neinnar teljandi endurskoðunar á þeim fram- farahugmyndum um kristindóminn sem frjálslyndu guðfræðingarnir vildu að lægju boðun og starfi íslensku kirkjunnar til grundvallar. Þrátt íyrir það róttæka uppgjör við frjálslyndu guðfræðina, sem átti sér stað um miðbik aldarinnar, hafa sjónarmið hennar um kristna trú haldist tiltölulega stöðug í trúarvitund þjóðarinnar. Skýringin á því kann að liggja í framförum í atvinnu- og menntamálum, sigrum í sjálfstæðisbaráttu, bættum lífskjörum o.s.frv. Astæðurnar liggja með öðrum orðum í auknu valdi Islendinga á eigin málum og vaxandi velmegun nær alla 20. öldina. Það sem vekur athygli í uppgjöri guðfræðinga - bæði í upphafi aldarinnar og síðar um miðbik hennar - er það að þeir grípa til Lúthers og kennivalds hans og nýjustu rannsókna í biblíufræðum til að styðja gagnrýni sína. Hér á eftir verður gerð grein fyrir tveimur höfundum sem nýttu sér Lúther á þennan hátt, annars vegar Friðrik J. Bergmann (1858-1918) og hins vegar Sigurbjörn Einarsson. Friðrik heyrir til fyrstu kynslóð frjáls- lyndra guðfræðinga og hafði mikil áhrif á íslenska guðfræði.1 2 Hann greip til guðfræði Lúthers til að réttlæta notkun sögurýninnar (þ. historisch- kritische Forschung) til að ljúka upp ritningunni sem orði Guðs. Atökin um réttmæti þess við upphaf 20. aldarinnar tengdust mikið vinnunni við þýðingu Biblíunnar og útkomu hennar 1912.3 Sigurbjörn Einarsson nýtir sér á hinn bóginn Lúther og guðfræði hans til að gagnrýna mannskilning og frelsunarfræði frjálslyndu guðfræðinnar. I þeim deilum var líka tekist á um réttan kirkjuskilning. Frjálslynda guðfræðin setti á oddinn þjóð- kirkjuhugtakið og átti þar vissa samleið með leikmannahreyfingunni, en þegar leið fram á miðja öldina kom fram á sjónarsviðið, samhliða nýrétt- trúnaðinum, hákirkjuskilningur með áherslu á vægi biskupsembættisins. Núningur var og er nokkur innan kirkjunnar vegna þessa mismunandi 1 Adolf von Harnack, Das Wesen des Christentums, 4. útg. 1964 (1. útg. 1900), Miinchen og Hamborg; Adolf von Harnack, Kristindómurinn, íslensk þýðing eftir Ásmund Guðmundsson, Seyðisfjörður 1926. 2 GuðfræBingatal 1847-2002 II, ritstj. Gunnlaugur Haraldsson, Reykjavík 2002, 976-977; Friðrik J. Bergmann, Trú ogþekking, Reykjavík 1916, 112-116. 3 Jón Helgason, Grundvöllurinn er Kristur, Reykjavík 1915, 44-55; Friðrik J. Bergmann, Trú og þekking, 118-121; Gunnlaugur A. Jónsson, „Þýðingarstarf Haralds Níelssonar og upphaf „biblíugagnrýni“ á íslandi", STI4, Reykjavík 1990, 67-75 [57-84]. 77
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.