Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 109

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 109
ótti haldi aftur af þeim að skýra yfirvöldum og öðrum sem málið varðar frá því sem gerðist. Með því að vera þeim miskunnsamur Samverji hjálpi kirkjan þeim að bera byrðina áleiðis.29 Undirkafli þessa atriðis hjá Fortune fjallar um þá tilfinningu fórnarlamba að vera yfirgefin af Guði. Það eru einkum tvær meginástæður fyrir því að fórnarlömb upplifa slíka tilfinningu, segir hún, annars vegar skortur á stuðningi og aðstoð af hálfu fjölskyldu og vina og hins vegar, reynsla og skilningur fórnarlambsins á þjáningu. Ef viðkomandi hafi þá guðsmynd að auki að Guð sé allt í senn, almáttugur, kærleiksríkur og réttlátur, verður þjáningin oft tákn um refsingu Guðs eða að hann fylgi ekki leikreglum. Hvor skilningurinn sem er geti leitt til ályktunarinnar að Guð hafi yfir- gefið þann sem fyrir ofbeldinu varð. Guðsskilningur hinna trúuðu er því lykilatriði, ítrekar Fortune.30 Margir hugsi sér Guð svo að alvald hans birtist einmitt þannig að hann skipti sér af örlögum einstaklinga, grípi inni í atburðarás og breyti henni. Af hverju gerði hann það þá ekki þegar ég þurfti á því að halda, spyrji fórnarlambið. Þótt Fortune hafi áður varað við því að fara að ræða guðfræði við þolendur kynferðislegs ofbeldis, kemur þó yfirleitt að því að það verður að gera.31 Þegar sú stund rennur upp er þó mikilvægt að hennar mati að geta rætt um annars konar guðsmynd, nefnilega þá mynd þar sem Guð birtist við hlið manneskjunnar í nauðum hennar og þjáist með henni.32 Guð færði Jesú ekki niður af krossinum, hann var hins vegar nálægur honum gegnum alla hans þjáningu, segir Fortune. Fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis sannfærast oft ekki um þessa nærveru Guðs í þjáningunni þrátt fyrir orð og aðgerðir prestsins. Því verði presturinn að geta tekið án þess að dæma tilfinningar viðkomandi, minnugur þess að jafnvel Jesús upplifði samskonar tilfinningar, sbr. orð hans á krossinum: „Guð minn, því hefur þú yfirgefið mig“. Við getum aðeins reynt að skilja ótta fórnarlambs kynferðislegs ofbeldis gagnvart slíkri höfnun, undirstrikar Fortune, og jafnframt vitnað um nærveru Guðs í eigin lífi á erfiðum tímum. 29 Fortune, Marie M. 2005. Sexual Violence, bls.147. 30 Þessi staðhæfing Fortune eru í samræmi við fjölda rannsókna á sviði trúarlífssálarfræði. Þar má nefna klínískar rannsóknir Ana-Maria Rizzuto sem rannsakað hefur tengsl æskuminninga og guðsmyndar, sbr. The Birth of the Living God - A Psychoanalytic Study 1979. Chicago, The University Press of Chicago. 31 Fortune, Marie M. 2005. Sexual Violence, bls. 148-150. 32 1 þessari túlkun Marie Fortune er greinilegt að hún er undir áhrifum guðfræðinga eins og Júrgen Moltmann sem leggur áherslu á þetta atriði varðandi þjáninguna. Moltmann er einn áhrifamesti guðfræðingur síðari hluta 20. aldarinnar og guðfræði hans hefur haft mjög víðtæk áhrif. 107 L
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.