Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 114
leið til raunverulegs bata. Þegar samfélagið allt, þ.e. kirkjan, fjölskyldan,
dómstólarnir og vinnustaðirnir, standa með þolandanum skapast mögu-
leiki á því að upplifa nýtt frelsi. Þetta var það sem ekkjan þráaðist við að
biðja óréttláta dómarann um í frásögu Lúkasarguðspjalls (kafla 18): Að
hann hlustaði á hana og viðurkenndi opinberlega það sem gerst hafði. Slík
viðurkenning samfélagsins stuðlar að uppreisn æru hennar og endurkomu
inn á svið samfélagsins án sektar eða brennimerkingar. Uppreisn æru er
lokapunktur í réttlætisferlinu. Það er þó ólíklegt, að mati Fortune, að
nokkur njóti nokkurn tíma fullkomins réttlætis eftir að hafa þolað órétt
kynferðisofbeldis. Aðgerðir samfélags og einstaklinga til að koma á réttlæti
munu aldrei skila fullkomnu réttlæti. Þau atriði sem hér hafa verið nefnd
eiga að skapa möguleika á því að bæði gerendur og fórnarlömb geti endur-
nýjað samband sitt við samfélagið og gerst fullgildir aðilar að því á nýjan
leik.42
Fyrirgefning
Það vekur athygli að Fortune nefnir tæpast þátt fyrirgefningarinnar í
tengslum við réttlát og ábyrg viðbrögð gegn kynferðislegu ofbeldi. Hugtakið
fyrirgefning hefur þó skotið upp kollinum nokkrum sinnum í orðræðu
hennar og hyggst ég enda þessa grein á því fjalla um megináherslur hennar
varðandi mikilvægi fyrirgefningarinnar í tengslum við kynferðislegt ofbeldi.43
Kjarnatriði hjá Fortune virðist mér vera að fyrirgefningin megi aldrei
verða skylda sem prestar eða fagfólk knýi fram hjá þolandanum. Slíkt segir
hún óraunhæft og sýni auk þess skort á næmi fyrir aðstæðum. Fyrirgefningin,
áréttar Fortune, er nefnilega ekki bara viljaverknaður heldur mögulega hluti
af bataferlinu og þarf þess vegna að fá að vaxa fram hægt og rólega. Þessi
skilningur útskýrir, að mínu mati, af hverju fyrirgefningin kemur ekki fyrir
í atriðunum sjö hér að framan. Bati eftir kynferðislegt ofbeldi byrjar ekki
með fyrirgefningu en fyrirgefningin getur hugsanlega verið síðasta og eitt
mikilvægasta skrefið í honum.44
42 Fortune, Marie M. 2005. Sexual Violence, bls.159-161.
43 Fyrir utan skrif Fortune um fyrirgefninguna í Sexual Violence styðst ég við grein eftir hana sem
heitir „Forgiveness: The Last Step“ í Violence Against Women and Children. A Christian Theological
Sourcebook 1995. New York, Continuum, bls. 201-206.
44 Fortune, Marie M. 2005. Sexual Violence, bls. 162—163. Fortune skrifar hér: „In situations of
violence or abuse, forgiveness is the last step, at best. But it can hold a key to healing”. (bls.163)
112