Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 122
á dýptina koma skýrt fram í drungalegri lífsvitund með áherslu á ótta
mannsins, þar á meðal ótta hans um að sannleikann sé hvergi að finna líkt
ogTillich kom ítrekað inná. Fyrir Paul Tillich hristi tómhyggja af þessu tagi
undirstöður mannsins. Djúpið er í hans fræðum hvorki jákvætt né neikvætt
heldur tvírætt og órætt.
Doktorsritgerð Sigríðar Guðmarsdóttur er ætlað að kanna hugtakið djúp
í guðfræði Tillichs með því að skoða það í tengslum við umræður líðandi
stundar um kynferði, kynjafræði og málnotkun. I því samhengi hugar
höfundur að verkum ýmissa fræðimanna þar sem póststrúktúralistana Luce
Irigaray, Julia Kristeva og Jacques Derrida ber hæst, en þau leituðu öll á
slóðir dulhyggjunnar eins og Paul Tillich, einnig skoðar höfundur kenningar
femínista úr röðum guðfræðinga (Catherine Keller og Marcella Althaus-Reid),
trúarheimspeki (m.a. Grace Jantzen) og guðfræðisagnfræðinga (m.a. Amy
Hollywood). Aðferðin felst í fjórgreindri aðkomu að djúpinu þar sem stuðst
er við tvær tvenndir úr dulhyggjuhefðinni. Þar er annars vegar um að ræða
hina jákvæðu leið guðfræðinnar og hina neikvæðu (kataphasis og apophasis) en
hins vegar er leið vitsmuna og leið tilfinninga (speculative og affective). Það á
við um báðar tvenndirnar að þær opna umræðu um kyn og vald.
Djúpið er þekkt þema úr ritum Hebrea og víðar; í klassískri grísku er he
abyssos notað til að lýsa því sem botnlaust er (byþos merkir botn á grísku). í
Sjötíumannaþýðingunni, Septúagintu, er orðið he abyssos þýðing á hebreska
orðinu tehom. I Nýja testamentinu er orðið notað fyrir dvalarstað hinna
látnu og einnig illra anda, í ritum dulhyggjumanna á 13. öld, t.d. í verkum
Hadewijch, Meister Eckharts og Jóhannesar Taulers varð það eitt megin-
hugtakið fyrir guðdóminn. Þegar hebreska orðið tehom í 1. Mósebók 1.2,
fyrir hin skapandi öfl alheimsins, tengdist orðinu khora í Tímeusi Platóns
varð til frjósamt hugtakasamspil í frumspekinni sem vísaði til sambands
guðdómsins, mannsins og heimsins. Lýsing Platóns á sköpun heimsins
í Tímeusi varð klassískur texti í fornöld. Tengsl orðanna tehom og khora
hafði varanleg áhrif á nýplatónismann í hinni kristnu trúarhefð og þar með
á frumspeki snemma á miðöldum. f guðfræði og heimspeki var hugtakið
hyldýpi notað um aldir um botnleysi verundarinnar, um dýptina í tilvist
mannsins og um guðdóminn.
Með því að rannsaka hyldýpið í verkum Tillichs gegnum sjóngler
verufræðinnar, tilfinninganna, ástríðunnar og frjóseminnar en ekki með
tungutaki klassískrar guðfræði telur höfundur sig ná því markmiði að geta
sýnt fram á að guðfræði dýptarinnar í verkum Tillichs ljúki upp mikilvægri
120