Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 123

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 123
tvíræðni á vettvangi hins líkamlega, á vettvangi tungumálsins og á því sem kalla mætti handanlægni, allt brúar það bil kynja og kynlíkama auk þess sem gildi þess fyrir guðfræðina er augljóst. Fyrsti hluti: Horft í hyldýpið I inngangskaflanum sem höfundur nefnir Horfi í hyldýpið er gerð grein fyrir nokkrum meginhugtökum ritgerðarinnar auk þess sem hann er eins konar samtal höfundar við fulltrúa ýmissa fræðigreina í samtímanum um hyldýpið (Burrus, Keller, Jantzen). Hún beinir sjónum að kynjafræði og nýju framlagi úr þeirri átt til dýpri skilnings á hyldýpinu, einnig hjá Tillich. Einn flötur umræðunnar tengist þeirri áherslu Tillichs í umfjöllun hans um djúpið að þar finni maðurinn ekki aðeins sælu og hamingju, guðlega hrifningu í anda dulhyggjunnar, heldur stafi honum einnig ógn af hyldýpinu. Kvennaguðfræðingar hafa skoðað þar orðfæri, m.a. að ótti mannsins beinist að „ógnandi óreiðu og fljótandi formleysi sem ögrar lífskrafti og vilja“ (s. 22). Höfundur bendir á að fræðimenn hafi Tillich hér grunaðan um ótta við vagina dentata eða það sem Keller nefnir tehomophobia, ótta við óreiðu tómsins (skv. sköpunarsögunni í 1. kafla I. Mósebókar). Það telur höfundur að kalli á ítarlega skoðun á aðgreiningu „sjúldegs ótta“ og „tilvistarlegs ótta“ (s. 22). Keller og Jantzen telja að framsetning - hvort sem það eru textar Biblíunnar, miðaldamanna eða nútímahöfunda — á hyldýpinu eigi sér erótískar rætur þótt með ýmsum hætti sé (s. 22). Umfjöllun Tillichs hlýtur að eiga sér rætur í þessari auðugu hefð. I þessum fyrsta hluta ritgerðarinnar kannar höfundur viðhorf ýmissa fræðimanna, femínista og kvennaguðfræðinga úr ýmsum áttum. Meðal þeirra er bandaríski brautryðjandinn Mary Daly sem höfundar þessarar greinar sótd seminar hjá veturinn 1970-71 við Andover Newton háskólann í Boston, þemað var einmitt guðshugtakið „The Ground og Being“ í guðfræði Tillichs. Þá voru áhrif hans mikil á guðfræði hennar, ekki síst vegna þess að guðshugtak hans var kynlaust: „Grunnur tilvistarinnar“, guðdómurinn sjálfur, eða „Guð ofar guðum trúarbragðanna“ er hvorki karlkyns né kvenkyns. Annar hluti: Hin guðlega uppspretta í öðrum kafla, sem ber yfirskriftina Guðleg uppspretta allra hluta: leið neikvæðrar guðfræði (katafatísk leið), er fjallað um Maríufræði, um tákn- merkingu hins móðurlega hjá Júlíu Kristevu, um trúarlega táknfræði í 121
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.