Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2011, Page 139
rannsóknin varpi sérstöku ljósi á fyrri tíðar skilning þjóðar á sjálfri sér. Sú
krafa hefði útheimt gjörólíka hugmyndafræði og djúpa heimildarvinnu um
ólíkar sögur á ólíkum tímum sem efni væri í í heila bók til viðbótar. Með
því að létta þessari byrði af rannsókninni væri hægt að setja upphaflegt
markmið rannsóknarinnar skýrar í sjónlínu sem þverfaglega rannsókn
innan geðsjúkdómafræði og trúarbragða og sérstaklega þeirrar kristnu.
Lesa má út úr uppbyggingu ritgerðarinnar fjögur tilbrigði ólíkra tengsla
við sjálfið í fjórum sjálfstæðum köflum auk aðferðafræðikaflans í upphafi
og niðurlagskafla. Kaflarnir eru allmisjafnir að vöxtum og mun ég nú gera
uppbyggingu þeirra stuttlega skil. Yfirlit um kaflana er að finna á blaðsíðu
22-24. Lýsingin á efni kaflanna og hvernig þeir tengjast innbyrðist hefði
mátt vera lengri og ítarlegri því að hún hjálpar mikið sem leiðarstika í
gegnum ritgerðina. Fyrsti kaflinn „ The Healing Imagination “ er 80 blaðsíður
og fjallar um heimspekilegar, sálfræðilegar og guðfræðilegar kenningar um
mátt ímyndunaraflsins til lækningar. Annar kaflinn „ The Selfand the Psyche“
er 85 blaðsíður og tekur fyrir tengsl óvitundarinnar (the unconscious) og
sjálfsins, eða það sem Haukur Ingi kallar „the intraphysic“). Þriðji og fjórði
kaflinn eru styttri. Sá þriðji „ The Self and the Human Environment“ er
61 blaðsíða og fjallar um tengsl sjálfs og mannlegs umhverfis („the intra
personaP). Sá fjórði, „The Self and the Non-Human Environment“ rúmar
64 blaðsíður og greinir frá tengslum sjálfsins við þá náttúru sem ekki er af
mannlegum völdum („the supra personaT). Fimmti kaflinn „The Self and
the Sacred‘ er stærstur þeirra allra og fjallar um sjálfið í tengslum við hið
heilaga, sem Haukur Ingi kallar „the transpersonaP. Síðasti kaflinn geymir
niðurstöðurnar og er 15 blaðsíður að lengd. Spyrja má hvort ekki hefði verið
rétt að hafa kaflana fleiri og styttri og gera þannig úr þeim auðlesanlegri
heild. Þessi vangavelta sótti sérstaklega á mig í upphafi, þar sem rætt er um
aðferðafræðilegan grunn og stöðu þekkingar.
Megintitill rannsóknarinnar er „In a Land of a living God“. Haukur
Ingi skrifar á bls. 15: „The „space“ that allows for the workings of our
imagination and creation of the self is what we will metaphorically refer to
as „the land ofthe imagination. “ Hugtakið „Land hins lifanda Guðs“ berg-
málar biblíulegt orðfæri. I Sálmunum er víða talað um „land lifenda“ þar
sem Guð huggar og refsar mönnunum (Sálm 27:13, 52:5, 116:9). Eins má
greina þetta orðfæri hjá Esekíel (26:20 og 32:32). Guðdómurinn er bæði
nefndur „hinn lifandi Guð“ í hinum hebresku ritum (5. Mós. 5.26) og í
Nýja testamentinu (Hebreabréfið 12:22). Hinn lifandi Guð sem hefur af
137