Milli mála - 01.06.2016, Qupperneq 14
ÞÁTTUR VAR TEKINN Í HLAUPINU AF HÖSKULDI
14 Milli mála 8/2016
„ÞÁTTUR VAR TEKINN Í HLAUPINU AF HÖSKULDI“
(2) # Þáttur var tekinn í hlaupinu.
Áhugavert er að bera saman föst orðasambönd í hefðbundinni þol-
mynd (HÞM) og nýju ópersónulegu setningagerðinni (NÓS), sem
margir málhafar, einkum yngri kynslóðir, hafa í máli sínu.2 Nýja
ópersónulega setningagerðin er að sumu leyti svipuð hefðbundinni
þolmynd enda er hún stundum nefnd nýja þolmyndin en setninga-
fræði hennar er þó ólík HÞM vegna þess að andlag germyndarinnar
færist ekki í frumlagssæti í NÓS. Setningagerðirnar eru enn fremur
ólíkar að því leyti að NÓS varðveitir orðasambandsmerkingu í til-
vikum þar sem HÞM gerir það ekki. Þetta sést ef við berum saman
HÞM í (2) og NÓS í (3).
(3) Það var tekið þátt í hlaupinu.
Hér varðveitist orðasambandsmerking, ólíkt þolmyndardæminu í
(2). Í (3) sjáum við nokkur af aðalsmerkjum NÓS: 1) Andlagið þátt
er í þolfalli (þrátt fyrir að það sé enginn sýnilegur gerandi í nefni-
falli), 2) það getur ekki færst í frumlagssæti og 3) hjálparsögnin
sem tekur lýsingarhátt þátíðar er vera. Fyrstu tvö atriðin minna á
germynd en það þriðja á þolmynd. Hér má einnig nefna að í HÞM
samræmist persónubeygð sögn og lýsingarháttur nafnlið í nefnifalli
(Margir bílar voru teknir, Það voru teknir margir bílar) en slíku
samræmi er ekki til að dreifa í NÓS (Það var tekið marga bíla).
Í umfjöllun Chomskys (1981:194) er sá möguleiki ræddur að
tiltekin föst orðasambönd krefjist þess að sögnin og beint andlag
hennar séu hlið við hlið í afleiðslu merkingarfræðinnar. Í þessari
2 Nýja ópersónulega setningagerðin hefur komið þó nokkuð við sögu í fræðilegum skrifum á síðustu
árum, sbr. t.d. Helgi Bernódusson (1982:212), Halldór Ármann Sigurðsson (1989:355, 2011),
Helgi Skúli Kjartansson (1991), Maling og Sigurjónsdóttir (1997, 2002, 2012, 2013, 2015),
Sigríður Sigurjónsdóttir og Maling (2001a–b), Maling (2006), Maling, Kroch og Sigríður
Sigurjónsdóttir (2011), Sigríður Sigurjónsdóttir og Iris Nowenstein (2016), Sigríður Sigurjónsdóttir
(væntanlegt), Margrét Guðmundsdóttir (2002), Jóhanna Barðdal og Molnár (2003), Jóhanna
Barðdal (2015), Höskuldur Þráinsson (2007, 2015), Höskuldur Þráinsson o.fl. (2015), Kristín M.
Valgarðsdóttir (2007), Ásbjörg Benediktsdóttir (2008), Þórhallur Eyþórsson (2008a–b, 2012),
Jóhannes Gísli Jónsson (2009), Auður Sif Sigurgeirsdóttir (2009), Hlíf Árnadóttir (2008), Hlíf
Árnadóttir og Einar Freyr Sigurðsson (2008, 2012), Hlíf Árnadóttir, Þórhallur Eyþórsson og Einar
Freyr Sigurðsson (2011), Einar Freyr Sigurðsson (2010, 2012), Einar Freyr Sigurðsson og
Brynhildur Stefánsdóttir (2014), Iðunn Garðarsdóttir (2012), Schäfer (2012), Anton Karl Ingason,
Legate og Yang (2012, 2013), Legate (2014), Whelpton, Sigríður Sigurjónsdóttir og Þórhallur
Eyþórsson (2013).