Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2016, Side 58

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2016, Side 58
57 orðum. Þekking sú sem fólgin er í viðtökunum er þögul þekking, réttara sagt kunnátta fremur en þekking. Þekking eða kunnátta er þögul ef hún verður ekki fulltjáð í staðhæfingum.34 Hugmyndin um þögla þekkingu er ættuð frá ungversk-breska fjölfræðingnum Michael Polanyi. Reyndar má finna svipaðar hugmyndir hjá Wittgenstein, hann talar eins og til sé þekk- ing sem ekki verði tjáð í orðum. Hann gefur í skyn að menn geti mætavel þekkt hljóm klarínetts án þess að geta komið orðum að þekkingunni.35 Polanyi notar önnur dæmi, t.d. þekkingu okkar á andlitum vina og kunn- ingja, auk kunnáttu okkar af ýmsu tagi. Við þekkjum andlit vina okkar án teljandi erfiðleika. Samt getum við ekki lýst þeim svo vel að fólk sem ekki hefur séð þau sjái þau í huganum í krafti lýsingarinnar einnar. Við getum hjólað og smíðað án þess að geta gert grein fyrir kunnáttunni. Ef við hugs- uðum um hvert einasta skref sem við tökum þegar við hjólum myndum við detta af baki! Polanyi segir beinum orðum: „We know more than we can tell.“36 Staðhæfinga-þekking (e. propositional knowledge) sé eins og sá hluti ísjakans sem sjáanlegur er, þögul þekking sé eins og þau 90% ísjakans sem eru undir yfirborði hafsins. Þannig er þögul þekking grundvöllur þeirrar þekkingar sem hægt er að tjá í staðhæfingum á borð við „orka er það sama og massi sinnum ljóshraðinn í öðru veldi“. Við getum ekki lært að hjóla eða smíða af bókum, aðeins með þjálfun, með athöfnum, því þekking eða kunnátta hjólreiða og smíða er þögul. 37 Sé þögul þekking grundvöllur viðtaka Kuhns þá líkjast þau fremur handverki en frumspeki, skóladæmum í málfræði fremur en kenningum um tungumálið. Vísindaleg skóladæmi eru með mikilvægustu þáttum við- takanna. Nánar tiltekið skóladæmi um hvernig leysa eigi tiltekin vísindaleg vandamál, rétt eins og beygingardæmi málfræðinnar sýna hvernig vissir orðflokkar eigi að beygjast.38 Við tileinkum okkur málfræði með þjálfun þar sem beygingardæmin leika lykilhlutverk. Að breyttu breytanda tileink- um við okkur vísindi með sama hætti. 34 Thomas Kuhn, The Structure of Scientific Revolutions, bls. 191, Thomas Kuhn, Vís- indabyltingar, bls. 371. 35 Ludwig Wittgenstein, Philosophical Investigations, bls. 36 (§7). 36 Michael Polanyi, The Tacit Dimension. Garden City: Doubleday, 1966, bls. 4. Í þýðingu minni: „Við getum ekki tjáð alla þekkingu okkar.“ 37 Meginrit Polanyis um þögla þekkingu er Michael Polanyi, Personal Knowledge. Tow- ards a Post-Critical Philosophy, Chicago: Chicago University Press, 1958, sérstaklega bls. 49–131. 38 Thomas Kuhn, The Structure of Scientific Revolutions, bls. 187, Thomas Kuhn, Vís- indabyltingar, bls. 364–365. ViðTöK OG VÍSiNDi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.