Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2016, Síða 69
68
heimum. Beinum orðum sagði hann meðal annars: „ „[…] eftir byltingu er
veröld vísindamannanna orðin önnur“.80
Sem dæmi um frumspekilega hlið viðtaka/fræðafylkja má nefna heims-
mynd vélhyggjunnar (e. the mechanistic world view). Hún varð til á sautj-
ándu öld og er enn við lýði. Samkvæmt henni er heimurinn eins og vél, t.d.
risastórt úrverk. Sautjándualdar-vísindamaðurinn William Harvey stað-
hæfði að hjartað væri pumpa, m.ö.o. ákveðin tegund af vél.81
Lítum á hugmyndina um skóladæmi. Þegar Galileo Galilei uppgötvaði
lögmál fallsins gerði hann ýmsar tilraunir sem urðu að skóladæmum um
hvernig ráða ætti gátur vísindanna.82 Starfsbræðrum Galileos þótti mikið
til um hvernig hann breytti ytri kringumstæðum tilrauna sinna með kerf-
isbundnum hætti í þeim tilgangi að skilja gangvirki náttúrunnar. Þannig
fór hann að er hann reyndi að grafast fyrir um það hvernig hlutir myndu
falla í lofttómu rúmi þar sem ekkert hindrar fallið. Áður höfðu menn látið
sér nægja að skoða náttúruna á ókerfisbundinn máta og án þess að breyta
ytri aðstæðum skipulega. Menn töldu rétt að kanna náttúruna eins og
hún kæmi fyrir af skepnunni, ekki grípa inn í náttúruferlin líkt og Galileo
gerði. Slík inngrip í náttúruna breyttu viðfanginu, sögðu þeir, og þar með
væri ekki hægt að skoða það eins og það eiginlega er (þessar hugmyndir
voru ættaðar frá Aristótelesi). En Galileo lagði grundvöll að nýju viðtaki
með nýjum hugmyndum um hlutlægni. Hann tjáði eina þessara hugmynda
með svofelldum orðum: „Mælið það sem mælanlegt er og gerið hið ómæl-
anlega mælanlegt.“83 Þetta varð kjörorð hins nýja viðtaks, kjarninn í gild-
ismati þess og forskriftum. Góð vísindi séu vísindi sem ástunda mælingar
eða vinna úr þeim. Af þessu megi sjá að vísindin séu gegnsýrð gildismati og
forskriftum, gagnstætt því sem raunspekingarnir héldu, staðhæfir Kuhn.84
Ég hef áður nefnt hugtakið um orðaforða sem Kuhn smíðaði á síðari
árum sínum. Á allra hinstu árum sínum hætti hann að tala um viðtök en
notaði í stað þess hugtökin um orðaforða og flokkunarkerfi.85 Vísindalegur
80 Thomas Kuhn, The Structure of Scientific Revolutions, bls. 135. „[...] after a revolution
scientists live in a different world.“ Thomas Kuhn, Vísindabyltingar, bls. 280.
81 Gunnar Skirbekk og Nils Gilje, Heimspekisaga, þýð. Stefán Hjörleifsson, Reykjavík:
Háskólaútgáfan, 1999, bls. 234–235.
82 Sama rit, bls. 229–230.
83 Samkvæmt t.d. Olav Asheim, „Galilei“, Filosofi og vitenskapshistorie, ritstj. Asheim
og Else Wiestad, Osló: Filosofisk institutt UiO, 2003, bls. 53–68, hér bls. 65.
84 Sjá t.d. Thomas Kuhn, „Objectivity, Value Judgment, and Theory Choice“, The
Essential Tension, bls. 320–339.
85 „Hinstu árin“ eru árin eftir u.þ.b. 1980.
steFán snævaRR