Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2016, Síða 89

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2016, Síða 89
88 Í túlkun sinni á sögu Kambódíu endurskapar Cixous pólitíska atburði í smáatriðum, þótt hún veigri sér ekki við að gera breytingar sem þjóna skáld- legum markmiðum. Í fyrsta hlutanum glímir Sihanouk við stjórnmálaátök heima fyrir og afskipti erlendra ríkja. Hann varð konungur Kambódíu í síð- ari heimsstyrjöld fyrir tilstuðlan nýlenduveldisins, Frakklands. Á fyrri hluta 6. áratugarins varð hann mun þjóðernissinnaðri og beitti sér opinberlega fyrir endalokum nýlendustefnu Frakka í Kambódíu. Þegar Kambódía fékk loks sjálfstæði árið 1953 áttaði Sihanouk sig á því að á tímum fjöldastjórn- mála gæti hann ekki sem konungur öðlast lýðræðislegt umboð til að stjórna. Því afsalaði hann sér konungsdómi, varð prins og þjóðhöfðingi og markaði stefnu sem dregin er saman í leikritinu á kjarnyrtan hátt: Kambódía skyldi vera „búddískt, hlutlaust og sjálfstætt konungsríki“.29 Þessi stefna var Bandaríkjamönnum, sem höfðu tekið við af Frökkum sem tákn vestrænnar heimsvaldastefnu í indókína, ekki að skapi. Þeir litu svo á að Sihanouk væri fulltrúi lénsveldis, kyrrstöðu og vanþróunar. Af þeim sökum reyndu þeir að fá ráðandi öfl í viðskiptalífi og her Kambódíu til liðs við sig í nafni nútímavæðingar. Sihanouk hélt stuðningi þessara hópa þangað til leiðtogar þeirra, Lon Nol og Sirik Matak, boluðu honum frá völdum. Í leikritinu er mikið gert úr árekstri sem skapaðist vegna gagn- rýni Sihanouks á stefnu Bandaríkjanna. Hann birtist í spennuþrungnum samræðum prinsins og bandaríska sendiherrans í Phnom Penh sem þjóna þeim tilgangi að draga fram andstæður þjóðernishyggju og heimsvalda- stefnu.30 Ein ástæða þess að Sihanouk sneri bakinu við Bandaríkjunum á fyrri hluta 7. áratugarins var lítilsvirðing sendiherrans í hans garð. Í leikrit- inu er t.d. margvísað í orð sendiherrans um að Kambódía sé „agnarsmátt land“. 31 Sihanouk gekk svo langt að slíta tímabundið stjórnmálasamskipt- um við Bandaríkin nokkru eftir að grein í vikuritinu Newsweek sakaði hann um spillingu og móður hans ranglega um vændishúsarekstur.32 Kiernander heldur því fram að umfjöllun Cixous í Sihanouk sé ekki frumleg vegna þess að bók Williams Shawcross, Sideshow: Kissinger, Nixon, and the Destruction of Cambodia, og kvikmyndin Killing Fields taki sömu atburði til umfjöllunar.33 Þessi túlkun er ótrúverðug. Texti Cixous spannar 29 Sama rit, bls. 35. 30 Sama rit, bls. 37. 31 Sama rit, bls. 57. 32 Sjá t.d. D.C. Pradhan, Foreign Policy of Kampuchea, London: Sangham Books, 1988, bls. 132. 33 Adrian Kiernander, Ariane Mnouchkine, bls. 33. iRma eRlingsDóttiR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.