Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2016, Blaðsíða 130
129
og nafn fyrsta flokksins bendir til inniheldur hann líffæri, sjúkdóma og
útlitseinkenni mannslíkamans sem líkjast öðrum óskyldum fyrirbærum.
Þriðji flokkurinn er fremur óræður og sá sem erfiðast er að greina að
mati Guðrúnar Láru. Hún nefnir að ýmis yfirgripsmikil sjúkdómsheiti geti
endurspeglað grunneðli veikindanna og tekur sem dæmi sjúkdómsheitin
eyðni og tæringu en einkenni beggja sjúkdóma er líkamleg hrörnun.25
Annar flokkurinn skiptir hér mestu en hann rímar best við líkingarnar
sem Scarry nefnir í sinni umfjöllun. Um hann segir Guðrún Lára: „innan
þessa flokks má greina tvær ólíkar tilhneigingar. Annars vegar er dregin
upp mynd þar sem líkt er eftir athöfnum annarra og hins vegar mynd
sem lýsir afstöðu einstaklingsins gagnvart umheiminum.“26 Í flokkinn falla
bæði líkingar sem lýsa árás einhvers utanaðkomandi, áþekkar líkingum
sem sóttar eru til stríðs og hernaðar, og líkingar sem vísa til upplifunar ein-
staklings á sjálfum sér í heiminum.27
Lýsingar Málfríðar á sjúkdómum sínum og sársauka einkennast mjög
af líkingum. Oft beitir hún árásarmyndmáli og stundum persónugerir
hún veikindi sín. Í því samhengi er fróðlegt að kanna hvernig hún lýsir
Svörtupísl en það er meginviðfangsefni næstu kafla.
„þegar Svartapísl og hnésbótamagnleysið leggjast á eitt
um að reyna að fyrirkoma mér“
Í bókinni Úr sálarkirnunni er að finna margvíslegar lýsingar á ónotum
Málfríðar og vanlíðan, ekki síst vegna Svörtupíslar en henni er alloft lýst.
Listfengi Málfríðar birtist meðal annars í því að hún segir aldrei nákvæm-
lega í hverju þessi písl felst heldur er lesendum eftirlátið að ráða í það, en
hér er litið svo á að um þunglyndi sé að ræða. Fyrsta vísbendingin sem mælir
með því er nafngiftin, en „myrkur“ eða „sorti“ er sú líking sem algengast
er að menn noti þegar þeir lýsa þunglyndi.28 Líkingin vísar til þess að þeim
þunglynda finnst að hann lifi í myrkri eða í heimi án birtu, hann sér ekki
fram úr aðstæðum og upplifir vanmátt og einangrun.29 Málfríður ritar
25 Sjá Guðrún Lára Pétursdóttir, „Myndir meina“, bls. 41–43.
26 Sama rit, bls. 42.
27 Sama rit, bls. 42–43.
28 Sjá Dagný Kristjánsdóttir, „Hugsýki“, Undirstraumar, Reykjavík: Háskólaútgáfan,
1999, bls. 326–342, hér bls. 339–340.
29 Sjá t.d. sama heimild, bls. 340; George Lakoff, Jane Espenson og Alan Schwartz,
Master Metaphor List, Second Draft, Berkeley: University of California, október
1991 [ágúst 1989], bls. 193; C.R. Snyder, „Hope and depression. A light in the
AF ALLRi PÍSL OG KVALRæði . . .