Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2016, Blaðsíða 157
156
yfirleitt dýrar, eru ríkjandi sjónarhorn í rannsóknum yfirleitt sjónarhorn
þeirra hópa sem hafa þegar sterkari stöðu og betri aðgang að fjármagni.
Af því leiðir að efnahagslegar, pólitískar og menningarlegar hugmyndir
þeirra móta yfirleitt rannsóknarniðurstöður, hvort sem það er af ráðnum
hug eða ekki. „Veik hlutlægni“ hefur of þröngt sjónarhorn til að rannsókn
geti hámarkað hlutlægni. (Eins og brátt kemur í ljós er sjónarhornið einn-
ig of vítt til að markmiðið náist).
Hefjið rannsóknir utan ríkjandi hugtakaramma Í kenningunni um
sterka hlutlægni er því haldið fram að með því að hefja rannsókn „utan
frá“ megi greina ríkjandi gildi, hagsmuni og hugmyndir, sem geta verið
útbreiddar, eða ekki útbreiddar, en þjóna yfirleitt fyrst og fremst valda-
mestu samfélagshópunum. Orðið „ríkjandi“ má nota í þeirri landfræðilegu
merkingu að það „gildi víðast hvar“, og það gætu verið hugmyndir margra
um vestræn nútímavísindi, að þau „gildi almennt“. (Með síðara orðalaginu
eiga fræðimenn að vísu við, til dæmis, að lögmál eðlisfræðinnar gildi alls
staðar í heiminum, ekki aðeins í þessum eða hinum menningarheimi). Hér
vísar orðið „ríkjandi“ öðru fremur til þeirra hugtakaramma sem þjóna gild-
um og hagsmunum valdamestu hópanna. Ríkjandi hugtakarammar þjóna
þess vegna viðkvæmustu hópunum hvorki efnahagslega né pólitískt nema
þegar gildi og hagsmunir þeirra eru þau sömu og valdamesta hópsins.
Sem dæmi má nefna að vestræn nútímalæknisfræði hefur þjónað gildum
og hagsmunum flestra þegar hún hefur fengist við smitsjúkdóma því bæði
kóngurinn og þræll hans geta veikst af mislingum eða alnæmi. En þannig
hefur það ekki verið þegar um er að ræða heilsufarsvanda sem hrjáir helst
ríka fólkið, eða þegar framleidd eru lyf sem aðeins þeir ríku hafa efni á.
Hvað merkir það að hefja rannsóknir utan fræðigreinar? Vitanlega er
aldrei hægt að komast alveg út fyrir mótunaráhrif fræðasviðsins, hvað þá
út fyrir sinn eigin tíma almennt, og svífa frjálst fyrir ofan menningu og
sögu, eins og hefðbundin vísindaheimspeki hefur hefur þó byggst á að
væri mögulegt. Enginn getur séð allan heiminn frá engum sérstökum stað.
Enginn getur haft það „staðlausa sjónarhorn“ sem Donna Haraway sagði
á eftirminnilegan hátt að væri „galdur Guðs“.21 En að finna eða skapa, þó
ekki væri nema svolitla fjarlægð frá ríkjandi hugmyndum og hagsmunum,
21 Donna Haraway, „Situated Knowledges. The Science Question in Feminism and the
Privilege of Partial Perspective“, Feminist Studies 3/1988, bls. 575–599.
sanDRa HaRDing