Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Síða 20
20 TMM 2009 · 3
B ó k m e n n t a h á t í ð
Vi vil ikke være brikker i deres spil
det har vi ikke tålmodighed til.“
Þær sömdu rokksöngleik sem aldrei var fluttur. Hann hét Angst og fjallaði um
miðaldra konu.3
Námsár á Soffíugarðinum
Þær stöllur ákváðu að taka sér hlé frá stéttabaráttunni og þegar Naja var 16 ára
flutti hún að heiman. Hún lét sér leiðast við barnapössun og heimilisverk á
meðan kærastinn sat úti í bæ og reykti sig skakkan.
18 ára gömul varð hún barnshafandi og móðir hennar sendi hana í ofboði í
viðtal til félagsráðgjafans Tine Bryld sem var þá landsþekkt fyrir útvarpsþætti
á sunnudagskvöldum þar sem hún veitti örvæntingarfullum unglingum góð
ráð. Ekki fer sögum af því hvað þeim fór á milli en frumburðurinn Frederik
kom í heiminn 1982. Naja hafði þá gerst umboðsmaður hljómsveita og næsta
skref var stúdentspróf. Það var á þessum árum sem við urðum nágrannar í
Kaupmannahöfn.
Þá ríkti mikil hamingja á Soffíugarðinum. Danska hippamenningin lifði
góðu lífi, ekki síst á Kristjánshöfn þar sem stúdentagarðurinn hafði risið á
rústum hertekinna húsa og blíður uppreisnarandi sveif yfir vötnum. Óli frosk-
ur, æskuvinur hljómsveitargæjanna í Gasolin, rak reiðhjólaverkstæði á jarð-
hæðinni sem sneri að Drottningargötu. Amalía, dóttir hans, geiflaði sig fram-
an í íslensku krakkana og þeir ulluðu á móti enda vissu þeir ekki að hún ætti
síðar eftir að leika austurríska prinsessu á móti Harrison Ford í Indiana Jones-
mynd. Kim Larsen átti til að vitja gömlu vinanna á fimmtudagskvöldum og
taka lagið í Soffíukjallaranum. Gítarleikarinn Franz Beckerlee tiplaði um á
háum hælum, grindhoraður í aðskornum satínfötum með ljósa lokka. Dóttir
hans var skírð í höfuðið á hunangi. Um þetta leyti var hann að þýða glæpasögu
sem hann gaf síðar út í eigin nafni og kallaði De gamle aber er de sjoveste.
Aldrei hafði Soffíugarðurinn verið eins þétt setinn Íslendingum. Þeir voru
ekki að bíða með barneignir fram yfir námslok eins og flestir innfæddir og
voru því búnir að koma sér fyrir í stærstu íbúðunum. Sjónarvottur lýsti samfé-
laginu á þá leið að þar bæri mikið á íslenskum börnum og konum en minna
færi fyrir körlum. Einn þeirra, Einar Már Guðmundsson, sótti Konunglega
bókasafnið samviskusamlega og lagði traustan grunn að skáldaferli sínum.
Meðfram óx fjölskylda hans jafnt og þétt; í rigningu á sunnudagsmorgni sáust
þau skáldið og Þórunn kona hans spásséra, ekki aðeins með eigin ómegð held-
ur höfðu aðrir krakkar og tveir hundar slegist í hópinn.
Inn í þetta umhverfi flutti ljóshærð dönsk fjölskylda. Á morgnana veifaði
mamman brosandi til litla stráksins áður en hún hjólaði af stað með skóla-
töskuna á bakinu. Síðdegis sátu feðgarnir í sólskini við Christianshavns Kanal,
hárprúður gutlaði faðirinn á gítar en strákurinn horfði á eftir bátum sem
mjökuðust um síkið.
TMM_3_2009.indd 20 8/21/09 11:45:28 AM