Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Side 21
TMM 2009 · 3 21
N a j a M a r i e A i d t
Sjö árum síðar áttu þau Naja og Martin Heurlin von á öðru barni en þá var
hún orðin þreytt á að þrífa skítinn undan öðrum og farin að þrá breytingar. Á
meðgöngunni ákvað hún að skrifa bók. Hún hafði þó ekki mikið álit á sjálfri
sér sem skáldi eða „litterat“; henni fannst hún hálfmisheppnuð; kornung móðir
með undarlegan bókmenntasmekk og hafði ekki einu sinni verið í Forfat-
terskolen. Sonurinn Carl Emil kom í heiminn 1989. Handritið fékk dræmar
undirtektir en þegar það barst í hendur ritstjóra hjá Gyldendal urðu viðbrögð-
in sérlega jákvæð. Þriðji sonurinn, Johan, fæddist 1991 og sama ár kom út
ljóðabókin Så længe jeg er ung. Hún hlaut mikið lof gagnrýnenda og stuttu
síðar skildi Naja við barnsföður sinn. Þá var hún 27 ára ljóðskáld og einstæð
þriggja barna móðir.
Hún lét aðstæðurnar ekki aftra sér heldur vandi sig á að skrifa í skarkala
heimilisins – börnin urðu að sætta sig við að mamma væri stundum annars
hugar.
Á undanförnum 18 árum hefur Naja Marie Aidt skrifað fjölmörg verk af
ýmsum gerðum; ljóð, smásögur, leikrit, barnabækur, kvikmyndahandrit.4 En
enga skáldsögu.
Mér finnst skrifað alltof mikið af doðröntum. Ég verð dauðþreytt þegar greint er frá
öllum smáatriðum. Smáatriði geta þó verið stórkostleg ef þau er valin af kostgæfni,
því þá eru þau merkingarbær. Mig hefur alltaf langað til að skrifa skáldsögu. En ég
hef ekki gert það. Ekki enn.5
Bavían og Bókmenntaverðlaunin
Naja Marie hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2008 fyrir smásagna-
safnið Bavían sem kom út árið 2006 og hlaut verðlaun danskra gagnrýnenda
ári síðar. Í rökstuðningi norrænu dómnefndarinnar stóð m.a.:
Smásögurnar 15 fjalla um veröld sem svipar til hversdagsleikans. Naja Marie Aidt
skrifar áferðarfallegan og ískyggilegan raunsæistexta, sem dregur fram undirtóna
raunveruleikans, svo lesandinn finnur að hversdagsleikinn hvílir á neti mögulegra
hamfara. Það sem tengir smásögur Naja Marie Aidt er lífssýn þeirra. En kannski
einnig eitthvað sem kalla má hnattrænt lífsmyrkur. Því í gegnum bókina rennur
straumur, púls, sem bæði er áferðarfallegur og ískyggilega þungbúinn.6
Naja Marie Aidt sagði verðlaunin viðurkenningu á smásöguforminu, stjúp-
barni bókmenntanna. Hún lítur þó öðru fremur á sig sem ljóðskáld og segir
miklu meiri vinnu felast í ljóðinu.
Smásögurnar í Bavían hafa verið kallaðar líkamlegar og holdlegar hvatir eru
þar í fyrirrúmi. Þar leynist hrollvekja sem er í skemmtilegu misræmi við bjarta
og brosandi ásjónu höfundar. Allt virðist vera í himnalagi og þokkalegu jafn-
vægi en reynist síðan á ystu nöf tilverunnar. Líkamleg hreysti snýst upp í and-
hverfu sína. Í einni sögu er ungur og sterkur karlmaður á heimleið eftir vel
heppnað fyllerí og jafnvel kvennafar. Sigurgöngu hans lýkur þegar mýfluga
TMM_3_2009.indd 21 8/21/09 11:45:28 AM