Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Blaðsíða 36
36 TMM 2009 · 3
B ó k m e n n t a h á t í ð
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Ný tengsl, náin kynni
Um litháska ljóðskáldið Gintaras Grajauskas
skáld eru einsog indjánar
þau dauðu yfirleitt best
skáld eru líka ákaflega
mannleg og já, það er
ákaflega mannlegt að vera
skáld, indjáni eða dauður
Þannig hefst nafnlaust ljóð eftir litháska skáldið Gintaras Grajauskas og er um
margt dæmigert fyrir skáldskap þessa ágæta höfundar, sem hóf feril sinn í
nokkurs konar tómarúmi eftir að Eystrasaltslöndin endurheimtu sjálfstæði sitt
fyrir réttum tveimur áratugum. Upp var runninn nýr tími og ljóðmál sem
hafði löngum tíðkast var ekki lengur viðeigandi. Þrátt fyrir aldagamlar hefðir
í litháskri ljóðlist höfðu skáldin mátt lúta þeim reglum sem ríktu á sovéttím-
anum og halda stöðugt því „rétta“ fram til að geta tekið opinberan þátt í lista-
og menningarlífi þjóðarinnar. Í Litháen nutu skáldin virðingar og vinsælda,
ekki síst á áttunda og níunda áratugnum, en áberandi þáttur í ljóðagerðinni
voru myndhverfingar og listrænar vísanir sem fólu í sér ákveðið frelsi til að
miðla hinu ósagða og dulda í samfélagi sem annars var gegnsýrt af sósíalískri
hugmyndafræði. Með nýju sjálfstæði var tími breytinga og endurmats runninn
upp og þar með tími nýrra skálda.
Gintaras Grajauskas fæddist í bænum Marijampolé árið 1966, en fluttist átta
árum síðar ásamt foreldrum sínum til hafnarborgarinnar Klaipeda í vestur-
hluta Litháens. Fyrstu ljóðabókina sendi hann frá sér 1993 og hlaut hún verð-
laun sem besta ljóðabók efir nýliða það árið. Síðan hafa komið frá hans hendi
margar ljóðabækur, skáldsaga, ritgerðasafn og nokkur leikrit sem hafa hlotið
verðlaun og viðurkenningar. Gintaras lauk námi við jazzdeild Tónlistarháskól-
ann í Klaipeda og hefur ásamt ritstörfunum getið sér orð á tónlistarsviðinu,
m.a. sem söngvari og bassaleikari í blús- og rokkhljómsveitunum Kontrabanda
og Rokfeleriai. Einnig hefur hann þýtt úr pósku og rússesku. Í rúman áratug
var hann blaðamaður og lengst af ritstjóri Rafdropans (Gintaro lasai), bók-
menntarits dagblaðsins Klaipeda, sem m.a. lagði áherslu á að kynna unga höf-
unda og birta efni eftir þá. Síðastliðið ár hefur hann hins vegar starfað í bók-
menntadeild Leikhússins í Klaipeda. Segja má að Gintaras hafi frá upphafi gert
út frá Klaipeda með ljóð sín og önnur verk. Hann hefur verið tíður gestur á
bókmenntahátíðum og á undanförnum árum hafa ljóð hans verið þýdd og
TMM_3_2009.indd 36 8/21/09 11:45:29 AM