Tímarit Máls og menningar - 01.09.2009, Blaðsíða 39
TMM 2009 · 3 39
J o h a n H a r s t a d
hafa til verðlauna, síðast Stúlkan sem Guð óttaðist (Mergaité, kurios bijojo
Dievas) 2007, sem hlaut virt leiklistarverðlaun í Litháen á síðasta ári.
Þess ber að lokum að geta að greinarhöfundur hefur nýtt sér tiltækar upplýs-
ingar og skrif um verk Gintaras Grajauskas á ensku og sænsku, auk þess að hafa
beinan aðgang að honum sjálfum í tíma og ótíma við að íslenska ljóð hans.
Þórdís Gísladóttir
Maðurinn er aldrei einn
Hvað varð um Buzz Aldrin í manngrúanum?
eftir Johan Harstad
Norðmaðurinn Johan Harstad er fæddur í Stavanger 1979 og fyrsta bók hans
kom út 2001. Hún geymir nett safn af smáprósum og hefur titilinn Herfra blir
du bare eldre (Héðan í frá eldistu bara). Þar er í örstuttum köflum sagt frá fólki
sem flest er á barmi örvæntingar, manneskjum sem eru um það bil að missa
tökin á tilverunni og hvísla mishátt eftir hjálp.
Bókin fékk góðar viðtökur gagnrýnenda, efnið
þótti ágengt og ekki síður rödd höfundarins. Árið
eftir, 2002, kom út smásagnasafnið Ambulanse
(Sjúkrabíll), sem sömuleiðis fékk hrós og höfund-
urinn var strax orðinn vonarstjarna í norskum
bókmenntaheimi.
Ambulanse er safn ellefu smásagna sem eiga það
sameiginlegt að allsstaðar vofir yfir einhverskonar
vá. Það er eitthvað hræðilegt í aðsigi. Sjúkrabíllinn
er í aðalhlutverki, hann tengir sögupersónur og
atburði, persónur úr einni sögu birtast í annarri og
þannig f léttast verkið svo vel saman að með
góðum vilja er hægt að skilgreina bókina sem dálítið sundurlausa skáldsögu.
Fólkið í þessum sögum er „venjulegar manneskjur“ sem eiga í tilvistarvanda og
eru berskjaldaðar, einmana og örvæntingarfullar. En einhversstaðar leynist
alltaf vonarneisti, menn þurfa bara að halda sér á floti, gefast ekki upp og reyna
að sjá einhverja glætu í myrkrinu. Auðvitað leynast allsstaðar hættur, hamfar-
ir geta brostið á hvenær sem er og við erum auðvitað öll dauðvona, en samt
bjargast allt einhvernveginn fyrir horn og þó það geri það ekki – ja þá bara það
og við förumst.
©
Jo
hn
E
ri
k
Ri
le
y
TMM_3_2009.indd 39 8/21/09 11:45:30 AM